Kjötmat
Matvælastofnun sinnir yfirkljötmati og ber ábyrgð á kjötmati í sláturhúsum og samræmingu þess. Sjá lög og reglur um sláturhús og kjötskoðun.
Innheimt er sérstakt gjald af sláturleyfishöfum til að standa straum af kostnaði við yfirkjötmatið. Nemur það 0,55 kr. á hvert innvegið kíló og tekur til kinda-, stórgripa- og svínakjöts. Við hvert sláturhús starfa kjötmatsmenn sem eru launaðir af sláturleyfishöfum en bera faglega ábyrgð gagnvart Matvælastofnun. Kjötmatið, þ.e. flokkun skrokka eftir holdfyllingu og fitu, gegnir veigamiklu hlutverki sem undirstaða verðlagningar og viðskipta með kjöt og til upplýsingar fyrir búfjárræktina. Í kjötmatsreglugerðinni (nr. 882/2010) segir m.a. um hlutverk Matvælastofnunar (stytt):
Matvælastofnun skal:
- hafa forystu um mótun á reglum um gæðamat og flokkun á kjöti.
- skipuleggja námskeið fyrir kjötmatsmenn.
- meta hæfni þeirra og setja þeim erindisbréf.
- leiðbeina þeim og samræma störf þeirra með reglubundnum hætti.
- skera úr ágreiningi um gæðamat og störf kjötmatsmanna.
- framkvæma yfirmat samkvæmt rökstuddri beiðni kaupanda eða seljanda.
- sjá til þess að safnað sé upplýsingum um gæðamat á kjöti og að þær séu til reiðu á aðgengilegu formi.
Niðurstöður
|  | Niðurstöður kjötmats 2010 (úr Starfsskýrslu MAST 2010)
|
|  | Niðurstöður kjötmats 2009 (úr Starfsskýrslu MAST 2009) |