Fara á forsíðu
LEIÐBEININGAR - MERKINGAR
Samkvæmt lögum og reglugerðum mega merkingar á umbúðum fóðurs ekki vera villandi fyrir kaupendur vörunnar, sérstaklega hvað varðar eiginleika fóðursins, samsetningu, geymsluþol og fleira. Einnig má ekki taka fram eiginleika sem ætla má að allt sambærilegt fóður hafi.

Merkingar skulu vera greinilegar, auðlæsilegar og á opinberu máli þess lands þar sem varan er seld.

Fyrirtæki eða einstaklingar sem setja fóður á markað eru jafnframt ábyrg fyrir merkingum þess.

Í merkingum eða leiðbeiningum með fóðri má ekki taka fram að það lækni, komi í veg fyrir eða lini ákveðna sjúkdóma eða heilsufarsvandamál.

Hér að neðan má finna upplýsingar um lögboðnar kröfur um merkingar á fóðri og sértækar reglur um merkingu gæludýrafóðurs.

Ítarefni

    Leiðbeiningar - Lögboðnar merkingar fóðurs

    Leiðbeiningar - Lögboðin merking gæludýrafóðurs

    Lög og reglur um fóður

Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað