
| Það
er með ýmsu móti hvernig staðið er að sundurdrætti fjár eftir að það
kemur úr sumarhögum. Víða er fé réttað í fjármörgum réttum þó að nú sé
fjárfjöldinn ekki svipur hjá sjón hjá því sem var á síðustu öld. Í
þessum réttum má ekki á milli sjá hvort er fleira fólk eða kindur. Huga þarf að velferð sauðfjár og smitvörnum undir þessum kringumstæðum.
|