Engar reglur eru í gildi hér á landi um erfðabreytt fóður. Samkvæmt svörum landbúnaðarráðherra við fyrirspurn á Alþingi 31. október 2007, er unnið að því að taka reglur Evrópusambandsins (ESB) upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið (EES). Þegar því verður lokið munu reglugerðir ESB verða innleiddar í íslenskan rétt og sömu reglur gilda hér á landi og í Evrópu.