Fara á forsíðu
FÓÐUR - INNFLUTNINGUR
Leiðbeiningar um innflutning á fóðri

  1. Þegar kemur að innflutningi þarf að senda Matvælastofnun tilkynningu á sérstöku eyðublaði, “Tilkynning um innflutning á dýrafóðri frá ríkjum innan eða utan EES " og afrit af vörureikningi. Innihaldi fóðrið dýraafurðir þarf að fylgja tilkynningunni Viðskiptayfirýsing, “Commercial document”, komi fóðrið frá löndum innan EES, en opinbert heilbrigðisvottorði sem ESB viðurkennir, komi fóðrið frá ríkjum utan EES. Gögnin þurfa að berast Matvælastofnun 48 klst. fyrir komudag.

  2. Öllu fóðri (öðru en hreinu fóðurefni) sem ætlað er fyrir dýr til manneldis, þarf að fylgja innihaldslýsing og notkunarleiðeiningar á íslensku. Merkingar fóðursins skulu gerðar skv. reglugerð um eftirlit með fóðri nr. 340/2001. Sjá viðauka 7, 8 og 9 um merkingu og skráningu fóðurs, merking (hreinna) fóðurefna og merking fóðurblandna og einstakra fóðurflokka.

  3. Eins og áður segir þarf að merkja saman öll fylgigögn fóðursins og gildir það sama um skráningu á gæludýrafóðri. Við viðbótar-eða endurskráningu þarf að gefa upp skráð fóðurnúmer og fóðurheiti skv.skráningu Matvælastofnunar auk þess sem ný fylgigögn eiga að vera merkt með nafni og vörunúmeri.

  4. Athugið að fylgigögnin sem send eru til skráningar og geymslu hjá Matvælastofnun þurfa að vera vel læsileg og ekki með smærra letri en 10 punkta.

 

Sjá lög og reglugerðir um fóðureftirlit.


Matvælastofnun hefur útbúið bréf á ensku sem innflytjendur geta sent framleiðanda/seljanda fóðursins til að fá þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru.

 

Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað