Framleiðendum og innflytjendum fóðurs ber að skrá bæði fyrirtæki sín og hverja fóðurtegund hjá Matvælastofnun skv. lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Bændur sem framleiða gróffóður til notkunar á eigin búum eru þó undanþegnir skráningu.
Leiðbeiningar um skráningu fóðurs hjá Matvælastofnun
- Fyllið út eyðublaðið "Umsókn um skráningu nýs fóðurs" sem má fá hjá Matvælastofnun eða á vefsíðunni. Hverri fóðurtegund þarf að fylgja eyðublað með umsókn um skráningu og fylgigögn með númerum og nafni. Við skráningu á gæludýrafóðri þarf auk þess að fylgja útfyllt eyðublað "Fylgiblað með umsókn um skráningu gæludýra-fóðurs", með vörunúmerum (vörureiknings eða strikamerkja) og vöruheitum hverrar fóðurtegundar. Ein lína er fyrir númer og nafn hverrar tegundar.
- Með umsóknareyðublaðinu þurfa að fylgja eftirtalin gögn, á íslensku, öðru norrænu máli eða ensku, yfir fóðrið:
- Upplýsingar um hráefnainnihald í prósentum, ef um er að ræða fóður fyrir dýr til manneldis, en annars í röð eftir fallandi þunga hráefna.
- Innihaldi fóðrið forblöndur eða viss aukefni þá þarf að gefa upp magn þeirra í fóðrinu.
- Efnagreining á fóðrinu.
- Merkja á saman gögnin (númer og nafn á fylgiblaði og innihaldslýsingu) sem send eru til skráningar, endurnýjunar- eða viðbótarskráningar.
Sjá lög og reglugerðir um fóðureftirlit