Fara á forsíðu
MATVÆLI - FÆÐUBÓTAREFNI

Mikilvægar upplýsingar vegna innflutnings og framleiðslu fæðubótarefna


Matvælastofnun túlkar reglugerðir er lúta að starfsviði hennar fyrir einstaklinga eða fyrirtæki sé þess óskað. Stofnunin tekur ekki að sér að fara yfir einstakar vörur/fæðubótarefni með tilliti til gildandi reglna og greina frá hvort þessar vörur uppfylli tilsett skilyrði eða hvort einhverju sé ábótavant.

Stofnunin hefur yfirumsjón með heilbrigðiseftirliti, m.a. með matvælum, og það samræmist ekki að veita ráðgjöf og þar með vilyrði um heimild fyrir vörurnar og hafa síðan yfirumsjón með eftirliti með þessum sömu vörum. Þess í stað bendir MAST einstaklingum eða starfsfólki fyrirtækja, sem flytja inn eða framleiða fæðubótarefni, á sjálfstætt starfandi þjónustufyrirtæki sem sjá um að fara yfir vörur með tilliti til gildandi laga og reglugerða um matvæli.

Eins geta einstaklingar og starfsfólk fyrirtækja sjálft farið yfir vörurnar og má finna reglur um matvæli á heimasíðu MAST.

Við innflutning og framleiðslu á fæðubótarefnum er nauðsynlegt að fylgja ákveðnu verklagi. Í stórum dráttum gæti það litið svona út:

  1. Kanna þarf hjá Lyfjastofnun hvort varan sem um ræðir er skilgreind sem lyf eða almenn vara. Samkvæmt lyfjalögum sker Lyfjastofnun þar úr um. Ef umrædd vara er skilgreind sem almenn vara þarf að skoða skilgreininguna á fæðubótarefnum í reglugerðinni nr. 624/2004 til að meta hvort umrædd almenn vara sé fæðubótarefni eða önnur matvæli.

  2. Eins og áður segir þá er vara almenn vara þ.e. matvara ef hún flokkast ekki sem lyf eða náttúrulyf. Starfsemi fyrirtækja sem standa að framleiðslu, innflutningi og dreifingu matvæla er háð starfsleyfi heilbrigðiðseftirlits sveitarfélaga.

  3. Ef vara er fæðubótarefni (sbr. skilgreiningu 2. gr. reglugerðar nr 624/2004) gilda um hana ýmis önnur ákvæði svo sem um:
    • hvaða vítamín og steinefni megi vera í vörunni
    • á hvaða formi þau megi vera
    • hreinleika efnanna
    • almennar merkingar, sem gilda um öll matvæli
    • sérmerkingar fyrir fæðubótarefni sbr. reglugerð 624/2004
    • merkingar næringargildis
    • tilkynningarskyldu

  4. Ef vítamín og/eða steinefni eru í fæðubótarefnum á markaði eða sem hugsanlega á að markaðssetja þarf að skoða vel hvort formin á þeim séu leyfileg sbr. viðauka 2 í reglugerð nr. 624/2004 um fæðubótarefni. Einnig þarf að skoða hvaða næringarefni eru leyfileg sbr. viðauka 1 sömu reglugerðar. Auk þess er heimilt að nota önnur form eða næringarefni til 31. desember 2009 svo framarlega að tilkynnt hafi verið um þau til Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) fyrir lok júlí 2005.

    Að neðan má sjá lista frá EFSA yfir efni og form, til nota í fæðubótarefnum, sem hafa verið tilkynnt til þeirra:

    Listi frá EFSA


  5. Varðandi hámarksmagn næringarefna mun Matvælastofnun gefa út leiðbeiningar um ásættanlegt hámarksmagn vítamína og steinefna í matvælum.  Í umfjöllun um ásættanlegt hámarksmagn styðst Matvælastofnun við álit vísindanefnda Matvælaöryggisstofnunar Evrópu.

  6. Ef varan uppfyllir ÖLL þau skilyrði sem um hana gilda getur innflutningur hafist og þá skal tilkynna innflutning til Matvælastofnunar á þar tilgerðum eyðublöðum. Mikilvægt er að eyðublöðin séu rétt út fyllt og skal eintak af merkimiðanum sem fylgir vörunni fylgja með tilkynningareyðublaðinu. Móttaka tilkynningar til MAST felur ekki í sér samþykki á vörunni.

  7. Þeir sem framleiða eða flytja inn vörur þurfa að kunna góð skil á þeim reglum sem um þeirra vörur gilda. Á heimasíðu MAST er að finna helstu reglugerðir sem gilda um fæðubótarefni og önnur matvæli.  Sjá lög og reglugerðir varðandi matvæli.
Mikilvægt er að hafa í huga að öll ábyrgð á markaðssettri matvöru hvílir á herðum framleiðenda, innflutningsaðila og dreifingaraðila. Ef hlutaðeiganda yfirsést reglur sem gilda um eigin framleiðslu/innflutning/dreifingu er slíkt ekki á ábyrgð eftirlitsaðila. Eftirlitsaðili sér aftur á móti til þess að reglur um matvæli séu uppfylltar.

Ef matvaran er ekki fæðubótarefni (sbr. skilgreiningu 2. gr. reglugerðar nr 624/2004) og í hana er bætt vítamínum, steinefnum, amínósýrum eða fitusýrum þarf að tilkynna slíka viðbætingu í samræmi við reglugerð nr. 855/2007 um íblöndun matvæla.

Ítarefni

    Upplýsingar um íblöndun bætiefna í matvæli

    Upplýsingar um næringar og heilsufullyrðingar í merkingum matvæla

Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað