Hrátt kjöt
- ferðamönnum er óheimilt er með öllu að
flytja hrátt kjöt til Íslands. Einungis er heimilt
að flytja hrátt kjöt til landsins þegar öllum
tilskildum vottorðum skv. 5. og 6. gr. reglugerðar nr. 509/2004
hefur verið framvísað við embætti yfirdýralæknis
til umsagnar og landbúnaðarráðuneytið hefur
gefið formlegt innflutningsleyfi.
Soðið kjöt
- allt að 3 kíló af soðnu kjöti má hafa
meðferðis. Sanna þarf að kjötið sé soðið.
Það verður á koma greinilega fram á umbúðum
að varan sé soðin, að öðrum kosti er hún
álitin ólögleg, verður gerð upptæk af
tollgæslu og henni eytt. Óyggjandi merking um suðu getur
verið "semicooked", "cooked", "fully cooked"
þegar um kjötvörur er að ræða. Niðursoðið
kjöt telst vera soðið og er því löglegt.
Ekki er nægjanlegt að vara sé t.d. söltuð eða
reykt.
Ostar
-
Hafa má meðferðis allt að 3
kíló
af ostum,
ef þeir eru sannanlega gerilsneyddir.
Það verður á koma greinilega fram á umbúðum
að osturinn sé unninn úr gerilsneyddri mjólk,
að öðrum kosti er hann talinn ólöglegur, verður
gerður upptækur af tollgæslu og honum eytt.
Tollafgreiðsla
Við tollafgreiðslu innfluttrar hrárrar
eða ósótthreinsaðrar vöru skal skv. 6. grein
reglugerðar nr. 509/2004 leyfi
landbúnaðarráðuneytisins ásamt eftirtöldum
vottorðum (skv. 5. grein sömu reglugerðar) liggja fyrir:
-
Opinbert uppruna- og heilbrigðisvottorð.
-
Opinbert vottorð sem staðfestir
að dýrum, sem afurðirnar eru af, hafi ekki verið gefin
vaxtarhvetjandi efni á eldistímanum.
-
Vottorð sem staðfestir að
vörurnar hafi verið geymdar við a.m.k. -18°C í
einn mánuð fyrir tollafgreiðslu.
-
Opinbert vottorð sem staðfestir
að dýrunum, sem afurðirnar eru af, hafi verið slátrað
í sláturhúsum og afurðirnar unnar í vinnslustöðvum,
viðurkenndum af Evrópusambandinu, aðildarríkjum
Evrópska efnahagssvæðisins eða bandarískum
stjórnvöldum, til útflutnings og/eða sölu
innan þessara ríkjasambanda.
-
Opinbert vottorð sem staðfestir
að afurðirnar séu lausar við salmonellusýkla.
-
Slátur- og mjólkurafurðir
og egg skulu uppfylla ákvæði gildandi reglugerðar
um aðskotaefni í matvælum
Varan skal merkt í samræmi
við gildandi reglur um merkingu, auglýsingu og kynningu matvæla.
Fyrir tollafgreiðslu við innflutning á
hitameðhöndlaðri vöru sbr. 4. grein reglugerðar
nr. 509/2004
skal alltaf leggja fram til umsagnar embættis yfirdýralæknis
aðflutningsskýrslu ásamt eftirtöldum vottorðum:
-
Opinbert uppruna- og heilbrigðisvottorð.
-
Soðnum sláturafurðum
og matvælum, sem ekki eru niðursoðin, fylgi sérstakt
opinbert vottorð, sem staðfestir að varan hafi hlotið
hitameðferð, þannig að kjarnhiti hafi náð
72°C í 15 sekúndur, sé það ekki staðfest
í uppruna- eða heilbrigðisvottorði, sbr. a-lið,
eða hafi hlotið sambærilega meðferð að mati
yfirdýralæknis.
-
Mjólk og mjólkurafurðum
fylgi sérstakt opinbert vottorð sem staðfestir að varan
sé gerilsneydd eða unnin úr gerilsneyddri mjólk,
sé það ekki staðfest í uppruna- og heilbrigðisvottorði,
sbr. a-lið, eða hafi hlotið sambærilega meðferð
að mati yfirdýralæknis.
-
Eggjum og eggjaafurðum fylgi
sérstakt opinbert vottorð sem staðfestir að varan hafi
verið hituð í 65°C í fimm mínútur,
sé það ekki staðfest í uppruna- og heilbrigðisvottorði,
sbr. a-lið, eða hafi hlotið sambærilega meðferð
að mati yfirdýralæknis.
Opinbert vottorð sem staðfestir
að afurðir séu unnar í afurða-/vinnslustöðvum,
viðurkenndum af Evrópusambandinu, aðildarríkjum
Evrópska efnahagssvæðisins eða bandarískum
yfirvöldum, til útflutnings og/eða sölu innan þessara
ríkjasambanda.
Athugið!
Auk aðflutningsskýrslu er um að ræða
3 vottorð; a., e. og annað hvort b., c. eða d., eftir því
sem við á.