MATVÆLI - INNFLUTNINGUR OG FRAMLEIÐSLA Á ORKUDRYKKJUM
Upplýsingar fyrir innflytjendur eða framleiðendur um markaðssetningu „orku“drykkja
Á Íslandi eru svokallaðir orkudrykkir flokkaðir og skilgreindir sem almenn matvæli. Þetta
þýðir að reglugerðir um almenn matvæli gilda einnig fyrir þessa drykki.
Innflytjendur og framleiðendur þurfa að kynna sér gildandi reglugerðir vel áður en
orkudrykkir eru settir á markað hérlendis.
Yfirlit yfir reglugerðir um matvæli
Reglur um koffínmagn
Ákvæði um hámarksmagn koffíns í drykkjarvörum í reglugerð um bragðefni hefur verið afnumið. Sérstakar kröfur um merkingar á koffíni koma fram í 2.-4. gr reglugerðar um merkingu matvæla sem innihalda kínín og matvæla sem innihalda koffín. Þar kemur fram að koffín skal merkja í innihaldslýsingu. Ef drykkur inniheldur meira en 150 mg/l skal merkja hann “Inniheldur mikið af koffíni” þannig að það sjáist um leið og heiti vörunnar.
Reglur um íblöndun bætiefna
Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 327/2010 um íblöndun bætiefna í matvæli skulu
matvælaframleiðendur og –innflytjendur tilkynna markaðssetningu orkudrykkja sem eru
bættir með vítamínum til Matvælastofnunar.
Upplýsingar um íblöndun bætiefna í matvæli
Önnur efni en vítamín og steinefni
Flestir svokallaðir orkudrykkir innihalda auk koffíns önnur efni sem talin eru hafa
einhvers konar virkni á líkamann. Virkni efna á líkamann getur verið breytileg t.d. eftir
því hversu mikið er af efnunum í drykknum. Sérstaklega hafa útdrættir (e. extract ) úr plöntum
mismunandi virkni og sum þeirra geta virkað eins og lyf. Leiki vafi á því hvort einstök
efni eða efnasambönd teljist lyf sker Lyfjastofnun úr.
Innflytjendur eða framleiðendur þurfa að kanna hvort efni í svokölluðum orkudrykkjum
hafa verið skilgreind sem lyf eða ekki áður en orkudrykkir eru settir á markað hérlendis.
Lyfjastofnun gefur út lista með vöruflokkun sem er uppfærður reglulega: Flokkun jurta/efna á vef Lyfjastofnunar