Upplýsingar fyrir ferðamenn
Samkvæmt reglum ESB má hver ferðamaður einungis hafa með í farangri sínum matvæli til eigin neyslu, þó ekki meira en 5 kíló eins og tollalög kveða á um, en til Bandaríkjanna mega íslenskir ferðamenn koma með allt að 25 kíló af matvælum.
Mjög mikilvægt er að gæta þess að vörur sem teknar eru með séu greinilega merktar þannig að greinilega komi fram að þær séu úr verslun og í opinberri sölu hér innanlands.
Danir krefjast þess að vörurnar séu unnar í sláturhúsi/mjólkurbúi sem viðurkennd er af ESB.
Matvælastofnun tekur ekki ábyrgð á því ef ferðamenn taka með sér meira magn en heimilt er í viðkomandi landi þó vottorð fylgi frá embættinu. Magn umfram leyfileg mörk er á ábyrgð eiganda.
Vottorð með íslensku kjöti til útlanda
Matvælastofnun hefur útbúið límmiða sem setja þarf á hverja einstaka einingu, þ.e.a.s. hvert stykki sem tekið er með sér af kjöti og laxi. Sé um stærri sendingar að ræða, eða mörg stykki, eru gefin út sérstök vottorð af embættinu.
Reglur um útflutning á matvælum til Bandaríkjanna
Samkvæmt nýjum bandarískum reglum um innflutning á matvælum ber að tilkynna hverja matvælasendingu með rafrænum hætti til Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna (FDA). Þegar um er að ræða póstsendingar skal senda slíka tilkynningu (Prior Notice) áður en böggullinn er sendur og skal staðfestingarnúmer sjást utan á bögglinum þegar hann er sendur (sjá ítarlegar leiðbeiningar hér neðar á síðunni).
Vegna mikils álags á heimasíðu FDA síðustu daga hafa komið upp tæknileg vandamál við rafrænu tilkynningarnar. Fyrst um sinn verður tekið vægt á því að reglunum sé ekki framfylgt í hvívetna og engar sendingar hafa verið stoppaðar vegna þessara nýju reglna. Mikilvægt er þó að reyna að fylgja reglunum eins og mögulegt er.
Á reglunum eru þó mikilvægar undantekningar mikilvægar fyrir okkur Íslendinga:
- Matur sem einstaklingur hyggst taka með sér inn til Bandaríkjanna til eigin nota (þ.e. ekki til sölu eða annarrar dreifingar) er ekki tilkynningarskyldur.
- Óheimilt er að taka með sér eða senda til Bandaríkjanna annað kjöt en lambakjöt.
- Heimilt er að taka með sér allt að 25 kg af lambakjöti.
- Líma þarf sérstakan miða á hverja einingu í sendingunni sem er eins konar heilbrigðisvottorð frá yfirdýralækni. Límmiðann er hægt að kaupa í öllum helstu matvöruverslunum.
- Matur sem aðeins fer um hafnir Bandaríkjanna, þ.e. sem ætlaður er til neyslu annars staðar en í Bandaríkjunum og fer áfram, án þess að vera leystur úr tolli í Bandaríkjunum, er ekki tilkynningarskyldur.
|
Rafrænar tilkynningar vegna póstböggla sem innihalda matvæli eða fóður - leiðbeiningar
|