Matvælastofnun gegnir hlutverki hinnar opinberu plöntuverndarstofnunar sbr. alþjóðasamninginn um plöntuvernd sem Ísland gerðist aðili að árið 2005. Stofnunin hefur eftirlit með innflutningi og útflutningi plantna og plöntuafurða vegna plöntuheilbrigðis. Hún skal hindra að nýir sjúkdómar og meindýr berist til landsins sem valdið gætu tjóni á innlendri plönturæktun og hefta frekari útbreiðslu skaðvalda. Undir þessum flokki er að finna eftirfarandi efni:
- Eftirlit: Framkvæmd laga og reglugerða
- Eyðublöð: Útsæðisleyfi, útgáfa heilbrigðisvottorða vegna útflutnings
- Kartöflur: Kartöfluafbrigði, listi yfir ræktendur, sölu- og dreifingarleyfi, reglugerð
-
Sjúkdómar og meindýr: Listi yfir sjúkdóma í kartöflum, tré og runnum og varnarefni