Trjáviður sem notaður er til að bera, styðja við og verja alls kyns vörur í flutningi þeirra á áfangastað, s.s. vörubretti og trékassar, eru taldir geta borið með sér skaðvalda er valdið geta tjóni á trjágróðri. Settur hefur verið alþjóðlegur plöntuverndarstaðall, ISPM15, til að draga úr þessari hættu. Matvælastofnun annast framkvæmd þessa staðals hér á landi. Undir þessum flokki er að finna eftirfarandi efni:
- Inngangur: Reglugerðir og kröfur um viðarumbúðir, saga og hætta sem stafar af þeim
- Leiðbeiningar: ISPM15 staðallinn, hitun, vottun, merkingar, geymsla, kostnaður, eftirlit
- Vottuð fyrirtæki: Fyrirtæki er hlotið hafa vottun MAST til að hita trjávið til umbúðagerða
- Ýmsar upplýsingar: ISPM15 staðallinn, skilyrði til útflutnings, gjaldskrá