Fara á forsíðu
EFTIRLIT MEÐ AÐSKOTAEFNUM Í SLÁTURAFURÐUM, MJÓLK OG ELDISFISKI

Embætti yfirdýralæknis hefur haft skipulegt, reglubundið eftirlit með aðskotaefnum og lyfjaleifum í búfjárafurðum hér á landi síðan 1989. Fyrstu mælingar á sláturafurðum á vegum yfirdýralæknis voru gerðar 1974, en þá voru mæld klórkolefnissambönd í mör fullorðins fjár. Þetta var gert til að kanna hvort leifar af baðlyfi fyndust í afurðunum eftir þrifabaðanir þar sem notað var Gammatox baðlyf (virkt efni: Lindan). Í byrjun níunda áratugarins var magn blýs og kadmíums mælt í lifur og kjöti lamba. Sýnatökuáætlanir fyrir aðskotaefnamælingar í sláturafurðum eru nú gerðar árlega samkvæmt reglum Evrópusambandsins (tilskipun 96/23) og eru þær samþykktar af matvælaeftirlitsdeild bandaríska landbúnaðarráðuneytisins og eftirlitsskrifstofu Evrópusambandins. Slíkt samþykki er nauðsynlegt til þess að sláturhús og mjólkurstöðvar hér á landi fái útflutningsleyfi á Bandaríkja- og Evrópusambandsmarkað. Umdæmisskrifstofur Matvælastofnunar sjá um sýnatöku búfjárafurða í sláturhúsum og á bændabýlum. Mælingarnar eru að hluta til gerðar á innlendum rannsóknastofum önnur sýni þarf að senda til rannsóknar erlendis. Rannsóknastofurnar sem mæla sýni fyrir matvælastofnun eru nú:

Tilraunastöð Háskólans í meinafræði á Keldum
MATÍS ohf
Norges Veterinærhögskole í Osló
Livsmedelsverket í Svíþjóð
Statens Veterinärmedicinska anstalt í Svíþjóð
Analycen í Svíþjóð
Födevarestyrelsen í Danmörku

Leitað er að efnum og efnasamböndum í eftirfarandi meginflokkum:

Flokkur A: Efni sem bannað er að nota innan ESB

A1-A5: Vaxtarhvetjandi efni (hormónar)
A6: Sérstök efni sem eru bönnuð t.d. Chloramphenicol, nitrofurans, nitroimidazoles, chlorpromazine.

Flokkur B: Leifar dýralyfja og önnur óæskileg efni

B1: Sýklalyf
B2a-f: Önnur dýralyf t.d. sníklalyf, bólgueyðandi lyf, róandi lyf.
B3a-f: Önnur efni t.d. lífræn klór- og fosfórsambönd, þungmálmar, sveppaeitur.

Á árinu 2007 voru rannsökuð sýni af búfjárafurðum ýmist undir greiningarmörkum eða undir hámarksgildi fyrir viðkomandi efni.

Hér að neðan má sjá niðurstöður rannsókna undanfarinna ára.

Aðskotaefnamælingar 2000
Aðskotaefnamælingar 2001
Aðskotaefnamælingar 2002
Aðskotaefnamælingar 2003
Aðskotaefnamælingar 2004
Aðskotaefnamælingar 2005
Aðskotaefnamælingar 2006
Aðskotaefnamælingar 2007

Aðskotaefnamælingar 2008

Aðskotaefnamælingar 2009

Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað