INNGANGUR
Erfðatæknin spratt upp og þróaðist úr rannsóknum á bakteríufræði í kringum 1970. Á 8. áratugnum voru þróaðar aðferðir til að tengja saman DNA-búta og flytja inn í litlar, hringlaga DNA-sameindir, plasmíð, sem gátu margfaldast í bakteríufrumum. Gen voru ferjuð úr dýrum og plöntum og aðferðir þróaðar til að tjáning þeirra gæti farið fram í bakteríufrumunum. Þannig var hægt að flytja gen úr einni lífveru yfir í aðra og innlima nýstárlega eiginleika eða einkenni. Með erfðatækninni fást erfðabreyttar lífverur (GMOs) en þær eru skilgreindar sem lífverur þar sem erfðaefninu (DNA) hefur verið breytt á annan hátt en gerist í náttúrunni við pörun og/eða náttúrulega endurröðun.
Hvað er gen?
Gen er sá hluti erfðaefnisins sem geymir upplýsingar um hvers konar prótein frumurnar í lífverum eiga að mynda, en próteinin (einnig kölluð eggjahvítuefni) eru stórar sameindir myndaðar úr amínósýrum. Próteinin gegna mikilvægu hlutverki t.d. við að brjóta niður næringarefni og byggja upp ný nauðsynleg efni. Það eru genin sem ákvarða mismunandi eiginleika lífvera, svo sem þá að plöntur mynda rætur og bera blóm og að fjórfætlingar hafa fjóra fætur. Genin ákvarða einnig annars konar eiginleika, t.d. lit blóma og augnlit manna og dýra.
Kynbætur og erfðabreytingar
Við kynæxlun blandast erfðaefni beggja foreldra og afkvæmin fá sitt lítið af hverju frá hvoru foreldri. Blöndun erfðaefnis er forsenda fyrir hefðbundnum kynbótum, en kynbætur eru þó takmarkaðar að því leiti að aðeins er hægt að blanda saman erfðaefni lífvera af sömu tegund. Hægt er til dæmis að blanda saman erfðaefni mismunandi hrossaafbrigða, en þegar erfðaefni hests og asna er blandað saman verður útkoman ófrjótt múldýr. Á sama hátt er aðeins hægt að blanda saman erfðaefni skyldra plantna. Með aðferðum erfðatækninnar er hins vegar hægt að færa erfðaefni milli óskyldra tegunda og þar með að fara yfir þau mörk sem náttúran setur blöndun erfðaefnis óskyldra lífvera. Þannig er hægt að flytja erfðaefni úr bakteríu inn í frumur hveitiplantna eða úr fiski í frumur kartöfluplantna og fæst með því erfðabreytt hveiti og erfðabreyttar kartöflur.
Í stuttu máli má því segja að munurinn á lífverum sem verða til með hefðbundnum kynbótum og þeirra sem eru erfðabreyttar, er sá að allt erfðaefnið blandast við hefðbundnar kynbætur og á sér stað innan sömu eða náskyldra tegunda en með erfðatækninni er hægt að flytja eitt eða fleiri vel skilgreind gen á milli ólíkra og óskyldra tegunda.
Möguleikar erfðabreytinga
Algengustu erfðabreyttu lífverurnar sem þróaðar hafa verið og markaðssettar (árið 2011) eru erfðabreyttar plöntur s.s. erfðabreyttur maís, soja, repja og baðmull. Þessum afbrigðum hefur aðallega verið erfðabreytt til að ná fram þoli gegn ákveðnum skordýrum og illgresiseyðandi efnum en áherslan í erfðabreytingunum hefur nú færst yfir á hollustu og aukna næringu matvæla og að auka framleiðslu þeirra sem mætir aukinni fæðuþörf sem leiðir af vaxandi fólksfjölgun í heiminum, einkum í þróunarlöndunum.
Plöntum hefur m.a. verið erfðabreytt til að ná fram:
- meiri uppskeru, m.a. með því að auka mótstöðuafl plantna gegn sjúkdómsvöldum (sveppum, veirum, skordýrum) eða illgresiseyðum. Plönturnar eru t.d. látnar framleiða efni sem fæla frá skordýr eða gera þær ónæmar fyrir sýkingum og illgresiseyðum,
- plöntum sem geta vaxið og þroskast við misjöfn umhverfisskilyrði, svo sem sveiflur í hitastigi, í frosti, við þurrka eða í söltum jarðvegi. Með þessu móti má rækta plöntur á svæðum sem annars myndu ekki henta vel til ræktunar eða jafnvel á áður óræktanlegum landssvæðum,
- auknu geymslu- og flutningsþoli grænmetis og ávaxta, t.d. með því að hægja á þroska,
- breytingum á efnasamsetningu. T.d. er hægt að breyta sterkjusamsetningu matvæla, breyta samsetningu fitusýra (aukið hlutfall oleic sýru á kostnað linoleic sýru) og breyta amínósýru samsetningu (meira meþíónín, lysín eða triptófan). Sem dæmi má nefna kartöflur með breytta samsetningu sterkju til framleiðslu á kartöflumjöli,
- plöntum þar sem ofnæmisvakar hafa verið fjarlægðir, t.d. úr hveiti og sojabaunum,
- plöntum með aukið næringargildi s.s. aukið magn A-vítamíns, C-vítamíns, fólínsýru eða annarra vítamína, aukið járn eða annarra bætiefna,
- plöntum með breytt orkugildi s.s. aukið próteininnihald í hrísgrjónum, sorghum, hveiti og fleiri korntegundum, minni fita,
- plöntum sem framleiða lyfjaefni, hormón, mótefni og fl. T.d. er lang stærstur hluti alls insúlíns sem notað er í heiminum framleitt með erfðatæknilegum hætti í bakteríum, en aðferðin var þróuð í kringum 1980 og árið 1982 kom fyrsta manna insúlínið á markað sem framleitt var í bakteríum.
Ekki eru allir sammála um ágæti erfðabreyttra lífvera og erfðabreyttra matvæla og fóðurs og hefur m.a. verið bent á hugsanlega áhættu sem af notkun þeirra hlýst. Meðal þess sem nefnt hefur verið er:
- notkun á illgresiseyðum eykst í stað þess að minnka,
- nýir eiginleikar erfðabreyttra plantna flytjast yfir í villtar plöntur og hafa áhrif á vistkerfið með ófyrirsjáanlegum áhrifum fyrir allt lífríkið,
- nýir eiginleikar erfðabreyttra matvæla og fóðurs færast yfir í þann sem þeirra neytir,
- heilsu- og umhverfisskaði,
- erfðabreyttar plöntur verða að illgresi,
- mengun á náttúrulegu erfðamengi plantna dregur úr erfðabreytileika þeirra.
Dýrum hefur einnig verið erfðabreytt þó að þau séu ekki enn komin á markað sem erfðabreytt matvæli eða fóður. En dýrum er m.a. erfðabreytt til að ná fram:
- aukinni mótstöðu gegn smitsjúkdómum. Slíkar erfðabreytingar á húsdýrum verða til þess að þau veikjast sjaldnar og þurfa minna af lyfjum og þannig er hægt að draga úr hættunni á að lyfjaneysla dýra hafi áhrif á neytandann vegna lyfjaleifa í matvælum,
- auknu þoli gegn kulda, hita og þurrki,
- auknum vaxtarhraða eða auknum afurðum, t.d. hraðari vexti svína og laxa eða aukinni mjólkurframleiðslu mjólkurkúa,
- erfðabreyttum dýrum sem framleiða og skila frá sér verðmætum lyfjum, t.d. í mjólk,
- erfðabreyttum dýrum sem notuð eru í þágu læknavísinda.
Það sem einkum hefur verið nefnt sem hugsanleg áhætta vegna erfðabreyttra dýra er:
- nýir eiginleikar erfðabreyttu dýranna flytjast í villta stofna og hafa áhrif á vistkerfið,
- dýr verða í auknum mæli látin þjást í þágu vísinda, t.d. við framleiðslu á risabúum,
- mengun á náttúrulegu erfðaefni dýrastofna dregur úr erfðabreytileika þeirra.
ERFÐABREYTT MATVÆLI
Hvað eru erfðabreytt matvæli?
Erfðabreytt matvæli eru skilgreind í reglugerð Evrópusambandsins nr. 1829/2003 sem matvæli sem samanstanda af, innihalda eða eru framleidd úr (að öllu leyti eða hluta) erfðabreyttum lífverum. Sem dæmi um þessi matvæli eru:
- matvæli sem eru eða samanstanda af erfðabreyttum lífverum: tómatar, kartafla, lax, banani og jólasalat/sikoría,
- matvæli sem innihalda erfðabreyttar lífverur: salami eða súrmjólk sýrð með erfðabreyttum mjólkursýrugerlum, múslí með erfðabreyttum fræjum, bjór með erfðabreyttum gersveppi,
- matvæli sem framleidd eru úr erfðabreyttum lífverum: tómatmauk úr erfðabreyttum tómötum, kornflögur og poppmaís úr erfðabreyttum maís, kartöflumjöl úr erfðabreyttum kartöflum,
- matvæli með innihaldsefnum sem framleidd eru úr erfðabreyttum lífverum: kex með olíu (baðmullar-, maís-, sojaolía og fl.), súkkulaði með sojalesitíni, bökunarvörur með maísstekju, glúkósa eða glúkósasírópi, ýmsar vörur með sykri úr erfðabreyttum sykurrófum.
Er óhætt að borða erfðabreytt matvæli?
Ekki eru allir á eitt sáttir um áhrif erfðabreyttra matvæla og spurningarnar sem við stöndum frammi fyrir varðandi öryggi og hollustu þessara matvæla eru ekki alltaf einfaldar. Allar lífverur innihalda mörg þúsund gen og í hvert sinn sem við borðum mat borðum við gen. Hvatar í meltingarveginum brjóta genin niður í smáar einingar, sem eru notaðar til að byggja ný gen, sem okkur eru lífsnauðsynleg. Reynslan hefur kennt okkur að óhætt sé að borða matvæli án þess að fram fari sérstakt mat á því hvort þau geti verið skaðleg.
Í erfðabreyttum matvælum eru sömu gen og í samsvarandi hefðbundnum matvælum. Munurinn er að einu eða fleiri genum hefur verið bætt við, breytt eða tekin burt með erfðatæknilegum aðferðum. Ekki er talið að erfðaefni flytjist yfir í erfðamengi þess sem neytir matvælanna. Þá skiptir vitanlega ekki máli hvort það er erfðaefni úr erfðabreyttri lífveru eður ei. Áður en erfðabreytt matvæli eru sett á markað í Evrópusambandinu þurfa þau að undirgangast strangt áhættumat sem framkvæmt er af Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) og teljast þau matvæli örugg til neyslu. Árið 2007 ályktaði EFSA, eftir að hafa farið í gegnum fjölda vísindagreina, að erfðaefni úr erfðabreyttum lífverum væri brotið niður í líkamanum á sama hátt og annað erfðaefni og að það væri ekki að finna í vefjum, vökvum (mjólk) eða unnum vörum dýra eins og kjúklingum, svínum, nautgripum eða fuglum sem alin eru á erfðabreyttu fóðri. Þ.e. erfðabreytta efnið flyst ekki yfir í þann einstakling sem neytir þess. Álit EFSA má nálgast hér: http://www.efsa.europa.eu/en/home/publication/edletter070719.htm.
Útbreiðsla erfðabreyttra matvæla
Frá því fyrstu erfðabreyttu tómatarnir komu á markað í Bandaríkjunum árið 1994 er búið að leyfa framleiðslu og sölu fjölmargra tegunda erfðabreyttra matjurta. Í ríkjum Evrópusambandsins hefur samt sem áður ekki verið heimiluð dreifing á mörgum erfðabreyttum lífverum sem notaðar eru sem matvæli, en þó hefur t.d. verið leyft að setja á markað erfðabreyttar sojabaunir, maís, repju, baðmull, kartöflur og sykurrófur og því er ljóst að afurðir þeirra geta dreifst víða í unnum matvælum. Sem dæmi um sojaafurðir má nefna sojaborgara, sojamjöl, sojaprótein, sojaolíu, súpur og aðrar vörur sem innihalda sojabaunir. Þá getur aukefnið lesitín verið unnið úr soja og dreifst víða, t.d. í kakó- og súkkulaðivörum.
Ýmsum öðrum matjurtum hefur einnig verið erfðabreytt víða um heim og má þar t.d. nefna tómata, melónur, hrísgrjón, hnetur, jarðarber, sólblóm, kúrbít og fleira auk fjölda unninna vara og ber þar helst að nefna vörur unnar úr tómötum. Það ber að hafa í huga að þrátt fyrir þessa upptalningu matjurta þá er ekki þar með sagt að þær séu komnar á neytendamarkað heldur er enn verið að vinna með fjölda þeirra á tilraunastigi. Ýmis lönd, s.s. Bandaríkin og Kanada hafa ekki gert kröfu um merkingu á erfðabreyttum matvælum og því geta matvælaframleiðendur átt erfitt með að vita hvort þeir eru að vinna með erfðabreytt hráefni eða ekki.
LÖGGJÖF Á ÍSLANDI
Matvælastofnun hefur yfirumsjón með löggjöf um erfðabreytt matvæli og erfðabreytt fóður en Umhverfisstofnun (www.ust.is) hefur yfirumsjón með löggjöf um erfðabreyttar lífverur.
Reglugerð nr. 1038/2010 um merkingu og rekjanleika erfðabreyttra matvæla og fóðurs
Í desember 2010 var innleidd hér á landi fyrsta reglugerðin um merkingu og rekjanleika erfðabreyttra matvæla og erfðabreytts fóðurs, nr. 1038/2010. Þann 1. september 2011 tók sá hluti reglugerðarinnar sem snýr að fóðri gildi en matvæla hluti reglugerðarinnar tók gildi í janúar 2012. Merkingarákæði reglugerðarinnar er byggt á reglugerðum Evrópusambandsins nr. 1829/2003 og 1830/2003 (um erfðabreytt matvæli og fóður) og samkvæmt reglugerðinni þarf að merkja öll erfðabreytt matvæli, jafnvel þótt að þau innihaldi ekki prótein eða gen úr erfðabreyttri lífveru.
Í gildissviði (1. gr.) reglugerðarinnar segir: “Reglugerðin gildir um merkingar og rekjanleika erfðabreyttra matvæla og erfðabreytts fóðurs eins og þau eru skilgreind í 3. grein þessarar reglugerðar. Reglugerðin gildir þannig um matvæli og fóður sem:
- eru, samanstanda af eða innihalda erfðabreyttar lífverur. Þetta geta verið erfðabreyttar plöntur, dýr og örverur. Dæmi: soja, maís, bómull, repja, tómatar, kartöflur, lax, múslí með erfðabreyttum fræjum, mjólkurvörur með erfðabreyttum mjólkursýrugerlum (lactobacilli), salami (hrá pylsa) með erfðabreyttum bakteríum (lactobacilli), bjór með erfðabreyttum gersveppi, mygluostur (blue cheesse) með erfðabreyttri myglu (mold), salat með erfðabreyttu káli (t.d. sikoría/jólasalat).
- eru framleidd úr erfðabreyttum lífverum eða innihalda innihaldsefni framleidd úr erfðabreyttum lífverum, þar sem erfðabreytta efnið greinist ekki í lokaafurðinni. Dæmi: matvæli framleidd úr erfðabreyttum lífverum: niðursoðnir tómatar, tómatsósa, kornflögur úr maís. Innihaldsefni framleidd úr erfðabreyttum lífverum: sojaolía, baðmulalrolía, repjuolía, maíssterkja, glúkósi (dextrósi) úr maís, glúkósa síróp úr maís, sykur úr sykurrófum, lesitín úr soja. Matvæli sem innihalda innihaldsefni framleidd úr erfðabreyttum lífverum: smjörlíki með sojaolíu/repjuolíu, kex með olíu, súkkulaði með lesitíni, bökunarvörur með maíssterkju, brauð með soja próteinum, tacos með maíssterkju, E-vítamín (tocopherol) úr sojabaunum, sellulósi úr baðmull.
Reglugerðin gildir ekki um matvæli og fóður þar sem innihaldsefni unnin úr erfðabreyttum lífverum eru 0,9% eða minna af einstökum innihaldsefnum eða samanlögðum innihaldsefnum ef þau eru sannanlega tilkomin vegna tilfallandi mengunar við flutninga eða af óhjákvæmilegum tæknilegum ástæðum. Þ.e. reglugerðin segir að ekki sé hægt að útiloka tilfallandi mengun og ekki þarf að merkja erfðabreytta efnið ef það er tilfallandi eða tæknilega óhjákvæmilegt og er ekki í meira magni en 0,9 %. Mengunin getur t.d. átt sér stað í ræktun, við uppskeru, flutning eða við framleiðslu. Framleiðandi eða innflytjandi vöru þarf að geta sýnt fram á og sannað að viðeigandi ráðstafanir hafi verið gerðar til að forðast mengun erfðabreytta efnisins til þess að það teljist vera tilfallandi eða tæknilega óhjákvæmilegt.
Reglugerðin gildir ekki um matvæli sem eru framleidd með hjálp erfðabreyttra lífvera eða afurða úr þeim, svo sem efnahvötum, þar sem efni úr erfðabreyttu lífverunni er ekki að finna í lokaafurðinni. Þarna er átt við lífverur eða efni sem notuð eru við framleiðslu matvælanna en lífverurnar/efnin er ekki að finna í lokaafurðinni sjálfri. Þessi matvæli þarf því ekki að merkja sem erfðabreytta vöru. Hins vegar er merkinga krafist ef matvælin innihalda efni sem framleidd eru úr erfðabreyttri lífveru og finnast í lokaafurðinni. Dæmi um hvað ekki þarf að merkja:
- ensím sem framleidd eru í erfðabreyttum örverum og notuð eru sem tæknileg hjálparefni við framleiðslu matvæla: chymosin (rennet), sem er hleypiefni notað til ostagerðar, amylasi sem klýfur sterkju í brauði og bökunarvörum, sykurkljúfandi invertasi í sælgæti og súkkulaði, pektínasi sem afmyndar/klýfur (degrade) frumuhimnur í safa og víni,
- aukefni, litarefni og vítamín sem eru framleidd með hjálp erfðabreyttra lífvera: B-vítamín (ríbóflavín), gervisætuefni (aspartame), þykkingarefni (xanthan), bragðaukandiefni (glútamat),
- örverur sem notaðar eru í matvælavinnslu eru stundum ræktaðar á erfðabreyttu æti eins og t.d. erfðabreyttum maís og erfðabreyttum soja. Ekki er litið á bakteríuætið sem aukefni í matvælavinnslu og fellur því ekki undir reglugerðina. Dæmi: ger til baksturs ræktað á æti sem inniheldur erfðabreyttan maís, C-vítamín sem framleitt er í örverum sem ræktaðar eru á glúkósa unnum úr erfðabreyttri maíssterkju, sítrónusýra framleidd í örverum ræktuðum á mólasa (molasses) unnum úr sykurrófum.
Samkvæmt reglugerðinni veldur fóðrun dýra á erfðabreyttu fóðri því ekki að afurðir dýranna teljist erfðabreyttar og því er ekki krafist merkinga á kjöti, eggjum, mjólk og mjólkurvörum dýra sem alin eru á erfðabreyttu fóðri.
Í 4. gr. reglugerðarinnar um merkingar erfðabreyttra matvæla segir að merkja skuli erfðabreytt matvæli á eftirfarandi hátt:
- þar sem matvælin eru erfðabreyttar lífverur skal orðið „erfðabreytt“, koma fram innan sviga strax á eftir vöruheiti. Dæmi: tómatur (erfðabreyttur), maís (erfðabreyttur),
- þar sem matvælin samanstanda af fleiri en einu innihaldsefni skulu orðin „erfðabreytt“, eða „framleitt úr erfðabreyttu (nafn innihaldsefnisins)“ koma fram innan sviga strax á eftir viðkomandi innihaldsefni í innihaldslýsingu. Dæmi: smjörlíki með sojaolíu (framleitt úr erfðabreyttri sojaolíu), tómatsósa (erfðabreyttir tómatar), snakk (erfðabreyttar kartöflur), súkkulaði með sojalesitíni (framleitt úr erfðabreyttum sojabaunum),
- þar sem innihaldsefnið er auðkennt með nafni flokks skulu orðin „inniheldur erfðabreytta (nafn á lífverunni)“ eða „inniheldur (nafn innihaldsefnisins) sem framleitt er úr erfðabreyttri (nafn lífverunnar)“ koma fram á innihaldslýsingu. Flokksheiti innihaldsefna má finna í viðauka I við reglugerð nr. 503/2005 um merkingar matvæla. Dæmi: jurtafita (inniheldur baðmullarolíu sem framleidd er úr erfðabreyttri baðmull),
- þar sem innihaldslýsing er óþörf skulu orðin „erfðabreytt“ eða „framleitt úr erfðabreyttri (nafn lífverunnar)“ koma fram á merkingunni. Í 9. grein reglugerðar nr. 503/2005 um merkingu matvæla má finna hvenær innihaldslýsing er óþörf. Dæmi: ferskir ávextir og grænmeti,
- upplýsingarnar sem vísað er til í liðum b og c mega koma fram í neðanmálsgrein við innihaldslýsingu. Í því tilviki skal prenta þær með letri sem er að minnsta kosti jafnstórt og letrið á innihaldslýsingunni. Þar sem innihaldslýsing er óþörf skulu þær koma greinilega fram á merkingunni,
- þegar matvælum er dreift án umbúða eða þau eru seld í litlum neytendaumbúðum þar sem yfirborðið er minna en 10 fersentimetrar þar sem það er stærst skulu upplýsingar sem krafa er gerð um í þessari grein ávallt vera sýnilegar þar sem matvælunum er stillt upp eða þar við hliðina á umbúðunum sjálfum í leturstærð sem er auðlæsileg. Dæmi: sælgæti í sælgætisbörum, vörur í bakaríum eða kjöt- og fiskboðum.
Rekjanleiki
6. og 7. grein reglugerðar nr. 1038/2010 fjalla um rekjanleika á erfðabreyttum matvælum og erfðabreyttu fóðri en þar segir að rekstraraðilar skulu sjá til þess að skriflegar upplýsingar um að varan samanstandi af eða innihaldi erfðabreyttar lífverur séu sendar áfram til rekstraraðilans sem tekur við vörunni. Sú krafa er því gerð til stjórnenda matvælafyrirtækja og matvælaframleiðenda að ef erfðabreytt innihaldsefni er að finna í vöru þá skal varan merkt sem erfðabreytt og upplýsingar um innihaldsefnið sem er erfðabreytt skulu sendar áfram til þess rekstraraðila sem tekur við vörunni. Þetta geta verið skriflegar upplýsingar frá þeim sem afhendir vöruna, rannsóknarvottorð eða aðrar upplýsingar sem staðfesta það að matvælin séu erfðabreytt (eða ekki).
Í löndum Evrópusambandsins gilda strangar reglur um markaðssetningu, merkingu og rekjanleika erfðabreyttra matvæla og ef erfðabreytt matvæli eru flutt inn frá Evrópusambandinu þá ætti að fylgja þeim skriflegar upplýsingar um að matvælið sé erfðabreytt ásamt upplýsingum um sérstakt kennimerki erfðabreyttu lífverunnar.
Ef matvæli eru flutt inn frá öðrum löndum en þeim sem tilheyra Evrópusambandinu, t.d. frá Bandaríkjunum, sem hafa aðrar reglur um erfðabreytt matvæli, eða jafnvel engar reglur, skulu rekstraraðilar afla sér upplýsinga um innihaldsefni matvælanna, hvort þau eru erfðabreytt eða ekki. Þetta má t.d. gera með því að afla upplýsinga frá þeim aðila sem afhendir vöruna ef slíkar upplýsingar eru fyrir hendi, eða með rannsóknarmælingum eða öðrum hætti.
Ef flutt eru inn erfðabreytt matvæli og þau áframsend til annars birgja skulu allar upplýsingar um erfðabreytinguna líka áframsendast til birgjans. Ef hins vegar erfðabreytt matvæli fara beint í búðir á vegum þess sem flytur þau inn þurfa upplýsingarnar um rekjanleikann ekki að fylgja með í búðirnar.
Eftirlit með erfðabreyttum matvælum og erfðabreyttu fóðri
Heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunnar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt vegna erfðabreyttra matvæla.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt vegna erfðabreytts fóðurs.
Lög nr. 18/1996 um erfðabreyttar lífverur
Lögin ná yfir alla notkun og starfsemi með erfðabreyttar lífverur, þar með taldar rannsóknir, ræktun, framleiðslu, geymslu, meðhöndlun úrgangs, sleppingu og dreifingu auk eftirlits með athafnasvæðum og hefur Umhverfisstofnun yfirumsjón með þessum málaflokki. Jafnframt taka lögin til innflutnings, merkingar, markaðssetningar, sölu og annarrar afhendingar erfðabreyttra lífvera, svo og til vöru (t.d. matvæla) eða hluta úr vöru sem inniheldur þær að einhverju leyti. Lögin gilda hins vegar ekki um afurðir erfðabreyttra lífvera.
Með stoð í lögum um erfðabreyttar lífverur og vegna EES skuldbindinga hafa verið settar eftirfarandi reglugerðir um erfðabreyttar lífverur sem Umhverfisstofnun hefur yfirumsjón með:
- reglugerð nr. 728/2011 um sleppingu eða dreifingu og markaðssetningu erfðabreyttra lífvera,
- reglugerð nr. 275/2002 um afmarkaða notkun erfðabreyttra örvera,
- reglugerð nr. 276/2002 um afmarkaða notkun erfðabreyttra lífvera, annarra en örvera.
LÖGGJÖF Í EVRÓPUSAMBANDINU
Helstu reglugerðirnar sem eru í gildi í ESB (september 2011) og fjalla um erfðabreyttar lífverur og matvæli eru:
|
Númer gerðar |
Titill |
Efni gerðar |
|
Directive 2001/18/EC |
Deliberate release into the environment of GMOs |
Community procedure for authorisation of
deliberate release (experimental or commercial) of GMOs into the environment
Definition of a GMO
Mandatory labelling of GMOs
Registers for recording public information on GMOs |
|
Regulation (EC) No 1829/2003 |
Genetically Modified Food and Feed |
Community procedure for authorisation of both GM food and GM feed (including one door-one key authorisation process, allowing approval of a GMO under Regulation (EC) No 1829/2003 both for food/feed uses and for cultivation)
Mandatory labelling of GM food and feed, irrespective of detectability of DNA or protein resulting from the genetic modification
0,9% labelling threshold for the adventitious or technically unavoidable presence of GM material in food or feed
Mandatory submission of detection methods and samples of GM food/feed, including validation by the Community Reference Laboratory (CRL) |
|
Regulation (EC) No 1830/2003 |
Traceability and Labelling of GMOs and food feed produced from GMOs |
Operators must transmit the following information to the operator receiving the product:
- an indication that the product contains GMOs
- the unique identifier(s) assigned to those GMOs |
|
Regulation (EC)
No 65/2004 |
System for
assignment of
Unique
Identifiers for
GMOs |
Unique Identifiers should be assigned to GMOs
according to the format defined in the Annex and
should appear in the GMO authorisation |
|
Regulation (EC) No 641/2004 |
Detailed rules for implementation of Regulation (EC) No 1829/2003 on GM food feed |
Details regarding the contents of an application for GM food feed authorisation, in particular regarding method validation and reference material |
|
Regulation (EC) No 1981/2006 |
Detailed rules for implementation of article 32 of Regulation (EC) No 1829/2003 on the CRL for GMOs |
Detailed rules concerning:
- the contribution to the costs of the tasks of the Community Reference Laboratory and of the National Reference Laboratories
- the establishment of National Reference Laboratories assisting the CRL for GMOs |
|
Recommendation 2004/787/EC |
Technical guidance for sampling and detection of GMOs |
Technical guidance in particular about sampling protocols and analytical test protocols (incl. unit of measurement for percentage of DNA) |
|
Regulation (EC) No 882/2004 |
Official controls performed to ensure compliance with feed and food law |
Community harmonised framework on official controls performed to ensure compliance with feed and food law
Designation and activities of Community Reference Laboratories and National Reference Laboratories (incl. on GMOs)
|
|
Decision 2004/204/EC
|
Detailed arrangements for the registers recording information on GMOs |
Details about the information to be recorded in the GMO registers provided for in article 31 of Directive 2001/18/EC |
|
Regulation (EC) No 1946/2003 |
Transboundary Movement of GMOs |
Specific requirements for exports of GMOs from the EU to third countries in order to ensure compliance with the obligations in the Cartagena Protocol on Biosafety (including information to be provided to third countries and to the Biosafety Clearing House BCH)
|
Upplýsingar í töflu fengnar úr skýrslu “The EU Legislation on GMOs, An overview”,
http://ihcp.jrc.ec.europa.eu/our_activities/gmo/eu-legislation-gmos
Löggjöf ESB varðandi erfðabreyttar lífverur hefur tvö megin markmið:
- að vernda heilsu manna og umhverfi: einungis leyfilegt að setja erfðabreyttar lífverur (GMO) eða matvöru unna úr þeim á markað í ESB ef það er heimilað eftir aðferðum sem skilgreindar eru í ESB reglunum og byggist á vísindalegu mati á áhættu fyrir heilbrigði og umhverfi,
- til að tryggja frjálst flæði hollra og öruggra erfðabreyttra afurða innan Evrópusambandsins: ef erfðabreytt lífvera, eða vara unnin úr henni, er leyfð á grundvelli ESB löggjafarinnar, þá er heimilt að nota vöruna og setja á markað á öllu ESB svæðinu.
Tvær helstu erfðabreyttu gerðirnar eru tilskipun nr. 2001/18/EB um sleppingu erfðabreyttra lífvera út í umhverfið og reglugerð nr. 1829/2003/EB um erfðabreytt matvæli og fóður og liggur munurinn á þeim í eftirfarandi:
Tilskipun nr. 2001/18/EB: setur reglur um stjórnun og umsjón með sleppingu eða dreifingu og markaðssetningu erfðabreyttra lífvera út í umhverfið. Aðalmarkmið tilskipunar nr. 2001/18/EB er að vernda heilsu manna og umhverfisins vegna sleppingar eða dreifingar erfðabreyttra lífvera út í umhverfið. Tilskipunin nær yfir eftirfarandi starfssemi með erfðabreyttar lífverur:
- tilraunarsleppingu eða dreifingu erfðabreyttra lífvera úti í umhverfið, þ.m.t. tilraunaræktanir,
- markaðssetningu erfðabreyttra lífvera, t.d. ræktun á erfðabreyttum fræjum í viðskiptalegum tilgangi og innflutningur á erfðabreyttu korni.
Reglugerð nr. 1829/2003/EB: setur reglur um markaðssetningu matvæla og fóðurs sem samanstanda af, innihalda eða eru framleidd úr erfðabreyttum lífverum (þ.e.a.s. erfðabreytt matvæli og erfðabreytt fóður). Þessi reglugerð setur almennan ramma og skýra umgjörð um stjórnun erfðabreyttra matvæla og fóðurs í ESB. Aðal markmið reglugerðarinnar er:
- að vernda heilsu manna og dýra með því að koma á öflugu öryggismati (safety assessment) af hæsta mögulega staðli, áður en erfðabreytt matvæli og fóður er sett á markað,
- að koma á samhæfðum aðferðum við áhættumat (risk assessment) og leyfisveitingu á erfðabreyttum matvælum og fóðri sem eru skilvirkar, tímaháðar (time-limited) og gagnsæjar,
- að tryggja skýrar merkingar á erfðabreyttum matvælum og fóðri til að bregðast við áhyggjum neytenda og gera þeim kleift að taka upplýsta ákvörðun.
Erfðabreyttar lífverur, matvæli og fóður á markaði
Báðar þessar reglugerðir kveða á um að sækja þurfi um leyfi fyrir ræktun, markaðssetningu og annarri notkun erfðabreyttra lífvera eða markaðssetningu og sölu erfðabreyttra matvæla og erfðabreytts fóðurs. Allir umsóknir um markaðssetningu erfðabreyttra matvæla, eða erfðabreyttra lífvera, sem berast á svæðinu fara í gegnum strangt áhættumat. Umsóknirnar eru sendar til Matvælaöryggisstofnunar Evrópu, EFSA (European Food Safety Authority) sem metur umsóknir eftir ströngum reglum. Aðeins þau erfðabreyttu matvæli sem talin eru skaðlaus með öllu fyrir menn og dýr og sem ekki eru talin hafa skaðleg áhrif á umhverfið fá leyfi til markaðssetningar.
Upplýsingar um þau erfðabreyttu matvæli og fóður sem leyfð eru til markaðssetningar í ESB má finna á þessari heimasíðu http://ec.europa.eu/food/dyna/gm_register/index_en.cfm
Í dag eru eftirfarandi erfðabreyttu plöntur leyfðar sem matvæli og/eða fóður í ESB: soja, maís, baðmull, repja, sykurrófur og kartöflur.
Þær erfðabreyttu lífverur sem leyfðar eru í ESB skv. tilskipun 2001/18 má finna hér:
http://gmoinfo.jrc.ec.europa.eu/
Merking erfðabreyttra matvæla og fóðurs í ESB
Frá því reglugerðir nr. 1829/2003 og nr. 1830/2003/EB tóku gildi árið 2004, hefur þurft að merkja öll leyfð erfðabreytt matvæli og erfðabreytt fóður með orðunum „genetically modified“ eða „produced from genetically modified (name of organism)“ í löndum ESB. Undanþegið frá merkingarreglunum eru matvæli/fóður þar sem ekki er hægt að útiloka tilfallandi eða tæknilega óhjákvæmilegar leifar heimilaðra erfðabreyttra lífvera ef þau samsvara 0,9% eða minna af innihaldsefnum vörunnar.
Dæmi um hvað þarf að merkja skv. reglugerð nr. 1829/2003/EB
|
Tegund erfðabreytingar? |
Ímyndað dæmi |
Þarf að merkja? |
|
Erfðabreytt planta/lífvera |
jólasalat |
Já |
|
Erfðabreytt fræ |
Maís fræ |
Já |
|
Erfðabreytt matvæli |
Maís, sojabaun, tómatur |
Já |
|
Matvæli framleidd úr erfðabreyttum lífverum |
Maísmjöl, sojaolía (highly refined soya oil) glúkósasíróp úr maíssterkju |
Já |
|
Matvæli úr dýrum sem alin eru á erfðabreyttu fæði |
Kjöt, mjólk, egg |
Nei |
|
Matvæli framleidd með hjálp erfðabreyttra ensíma |
Ostur með chymosini, bökunarvörur framleiddar með hjálp amylasa |
Nei |
|
Aukefni/bragðenfi í matvælum framleidd úr erfðabreyttum lífverum |
Lesitín úr erfðabeyttum sojabaunum notað í súkkulaði (Highly filtered lecithin extracted from GM soybeans used in chocolate) |
Já |
|
Aukefni í fóðri framleitt úr erfðabreyttri lífveru (Feed additive produced from a GMO) |
B2 vítamín(Ríbóflavín) |
Nei |
|
Erfðabreyttar örverur notaðar sem innihaldsefni matvæla |
Yeast extract |
Já |
|
Áfengir drykkir sem innihalda erfðabreytt innihaldsefni |
Vín með erfðabreyttum vínberjum |
Já |
|
Vörur sem innihalda erfðabreytt ensím þar sem ensímið verkar sem aukefni eða hefur einhverju hlutverki að gegna í framleiðslunni |
|
Já |
|
Erfðabreytt fóður |
Maís, soja |
Já |
|
Fóður framleitt úr erfðabreyttum lífverum |
Maísglúten fóður, sojabaunamjöl |
Já |