Hvað eru fersk matvæli?
Orðið ferskt
getur verið gagnlegt fyrir neytendur þar sem það auðveldar fólki að
gera greinarmun á vörum sem seldar eru fljótt eftir uppskeru eða
framleiðslu og öðrum vörum. Nútíma dreifing og geymsluaðferðir auka
verulega geymsluþol matvæla og það er því orðið mjög erfitt að ákvarða
hvenær rétt er að nota orðið ferskt.
Orðið ferskt
getur verið gagnlegt til að átta sig á því hvaða vörur hafa ekki farið
í gegnum neina vinnsluferla að undanskilinni kælingu, stjórnun á
andrúmslofti, skolun og snyrtingu.
Orðið ferskt er
oft notað í orðasamböndum sem höfða til tilfinninga, án þess að hafa
nokkra sérstaka merkingu t.d. freistandi ferskt, brakandi ferskt. Það
þarf að vera á ljóst hver tilgangurinn er með því að nota orðið ferskt
og forðast nota orðið til þess að lýsa einhverju sem stenst ekki
raunveruleika.
Samkvæmt
reglugerð um merkingu matvæla skal merking ekki vera blekkjandi fyrir
neytendur og því skal aðeins nota orðið ferskt þegar augljóst er hvað
átt er við með því. Sjá reglugerðir um merkingu matvæla
Æskilegt er að
merking hafi nánari lýsingu á hvað átt er við með orðinu ferskt þannig
getur neytandinn áttað sig betur á mismun milli sambærilegra vara t.d.
varan sem heitir “Ferskt ávaxtasalat” er með lýsingu á við “aðeins búið
til úr ferskum ávöxtum” þ.e. í salatið er ekki notað niðursoðnir
ávextir eða þurrkaðir.
Ekki má gefa í
skyn að vara sé úr nýrri uppskeru eða nýlega framleidd þegar pökkun,
geymsla og aðrar framleiðsluaðferðir eru notaðar til að viðhalda
ferskleika hennar. Matvæli í lofskiptum umbúðum má merkja með pakkað
ferskt.
Ávextir og grænmeti
Orðið ferskt er
nú almennt notað um ávexti og grænmeti sem ekki hafa verið meðhöndluð
sérstaklega með vinnsluaðferðum eins og þurrkun, niðursuðu eða
frystingu. Slík notkun er vel ásættanleg þar sem hún hefur ákveðna
merkingu í hugum fólks, þó svo að ávextir og grænmeti fari í gegnum
lágmarksmeðhöndlun eins og skolun og/eða snyrtingu.
Fiskur
Notkun á orðinu “ferskt” til að lýsa ísuðum fiski er einnig ásættanleg, en ekki þegar átt er við frystan fisk.
Í huga neytenda
er kjöt eða fiskur sem hefur verið fryst og selt uppþýdd ekki
ferskvara. Því er ekki rétt að nota hugtakið ferskt um slíkar vörur.
Ávaxtasafi
Ávaxtasafa sem framleiddir eru úr þykkni má ekki kalla ferskan ávaxtasafa.
Hugtakið ferskur
ætti einungis að nota fyrir safa sem eru beint úr ávextinum (þ.e. ekki
framleiddir úr þykkni) þegar stuttur tími er á milli þess sem safinn er
kreistur og pakkaður. Síðasta neysludag ætti að merkja innan við 2
vikum frá því safinn er kreistur.
Ef ávaxtasafi er
merktur “ferskur” og hann hefur verið gerilsneyddur skulu upplýsingar
um hitameðhöndlun koma fram sem hluti af fullyrðingunni t.d. ferskur
nýkreistur appelsínusafi, gerilsneyddur.
Ferskt pasta
Það hefur
skapast hefð fyrir því að nota hugtakið “ferskt pasta” fyrir pasta sem
hefur stutt geymsluþol. En þar sem neytandinn skilur hvað átt er við
með hugtakinu í þessu tilviki þá telst það ekki villandi merking.
Frosin matvæli/innihaldsefni:
Aðeins má nota orðið ferskt um frosin matvæli ef samhengið er rétt, t.d.
-
Frosið ferskt gefur til kynna að matvælin voru fersk (t.d. ný uppskera) þegar þau voru fryst.
-
Framleitt úr
ferskum hráefnum ætti aðeins að nota þegar innhaldsefnin sem notuð eru
í vöruna hafa ekki verið unnin (t.d. þurrkuð, frostþurrkuð, frosin,
þykkt, reykt, niðursoðin osfrv.)
-
“Framleidd með
fersku X” ætti aðeins að nota þegar X er nafnið á innihaldsefni sem
hefur ekki verið unnið og varan innheldur ekki sama innihaldsefni sem
hefur verið unnið sérstaklega til viðbótar. Til dæmis matvæli sem er
lýst þannig “framleitt úr ferskum tómötum” og varan innheldur einnig
niðursoðna tómata.
Ferskt bragð:
Lýsinguna ferskt
bragð ætti að ekki að nota þar sem það getur villt um fyrir neytendum,
Hugtök eins og “með bragði af fersku X (t.d. “með bragði af ferskri
sítrónu”) ætti aðeins að nota ef varan inniheldur ferskt X og bragðið
sem verið er að lýsa er að öllu leyti eða mestu leyti frá fersku X.
Kæld matvæli
Aukin sala á
kældum matvælum hefur orðið til þess að orðið ferskt er notað til að
gefa til kynna stutt geymsluþol í kæligeymslu og vekja sérstaka athygli
á muninum miðað við hefðbundin matvæli með langt geymsluþol. Dæmi um
slíkar vörur eru kaldar súpur og sósur með bragð og áferð sem gefa til
kynna að varan sé ekki eins mikið unnin og sambærileg vara sem seld er
í niðursuðudósum eða flöskum, ávaxtadjús sem er nýkreistur sem er
jafnvel gerilsneyddur. Í þessum tilvikum hefur varan stutt geymsluþol
jafnvel þegar hún er geymd í kæli og það á vel við að nota orðið fersk
um þær þar sem neytendur skilja hvað átt er við.