Starfsleyfi - fiskvinnslur:
Hlutverk MAST
Matvælastofnun veitir fiskvinnslufyrirtækjum, uppboðsmörkuðum með fiskafla, kæli– og frystigeymslum vinnsluleyfi, einnig frysti- og vinnsluskipum. Að auki veitir stofnunin starfsleyfi til annarra fiskiskipa. Vinnsluleyfi eru veitt að undangenginni upphafsskoðun og þurfa umsækjendur að uppfylla kröfur um hönnun, búnað, hreinlæti og innra eftirlit. Matvælastofnun annast reglubundið opinbert eftirlit hjá vinnsluleyfishöfum. Önnur fiskiskip og –bátar sem skráðir eru til veiða fá starfsleyfi frá Matvælastofnun og eru undir eftirliti stofnunarinnar.
Veiting vinnsluleyfa er ákveðið ferli sem lýst er sérstaklega hér á síðunni. Komi til niðurfellingar eða sviptingar leyfa er það einnig á hendi Matvælastofnunar.
Efst á síðu
Tegundir leyfa
Gerður er greinarmunur á frumframleiðslu annars vegar og annarri vinnslu hins vegar. Til frumframleiðslu innan sjávarútvegsgeirans teljast fiskveiðar, fiskeldi og skelfiskræktun. Starfsleyfi til frumframleiðslustarfsemi eru veitt að undangenginni skráningu. Öðrum vinnslustöðvum þ.m.t. frysti- og vinnsluskipum, fiskmörkuðum, aðgerðarþjónustum, kæli- og frystigeymslum eru að uppfylltum kröfum veitt vinnsluleyfi.
Aðilar sem annast meðferð, flutning, geymslu, vinnslu og dreifingu fiskafurða að undanskilinni smásölu eru leyfisskyldir hjá Matvælastofnun, en smásölufyrirtæki eru undir eftirliti Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga sem jafnframt veitir þeim starfsleyfi. Þá eru aðilar sem annast vöruflutninga, þ.m.t. flutning matvæla, starfsleyfisskyldir og eru undir eftirliti Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga.
Skv. matvælalögunum er smásala skilgreind sem meðhöndlun og/eða vinnsla matvæla og geymsla þeirra á staðnum þar sem þau eru seld eða afhent neytanda, þ.m.t. dreifingarstöðvar, matsölufyrirtæki, mötuneyti starfsfólks, veitingahús og önnur samsvarandi matarþjónusta ásamt verslunum og dreifingarstöðvum stórmarkaða og heildsölumarkaðir.
Þrátt fyrir ofangreinda verkaskiptingu milli eftirlitsaðila, er heimilt skv. matvælalögum að framselja eftirlit milli „lögbærra yfirvalda“, en bæði Matvælastofnun og Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga teljast vera lögbær yfirvöld á þessu sviði. Matvælastofnun hefur gengið frá framsalssamningi við nokkur heilbrigðiseftirlitssvæðanna. Eftirlit þeirra fyrirtækja sem hefur verið framselt er samræmt og lýtur sömu kröfum og önnur fyrirtæki undir eftirliti MAST.
Efst á síðu
Samþykkisnúmerakerfið
Vinnsluleyfishafar í fiskvinnslu og útgerð (þ.e. landvinnslur, vinnsluskip og frystiskip) fá úthlutað númerum sem kölluð eru samþykkisnúmer (e. approval numbers). Notkun samþykkisnúmera byggir á kröfum Evrópusambandsins, en fiskafurðir eru í frjálsu flæði innan EES. Samþykkisnúmerin eru fyrst og fremst notuð til að hægt sé að rekja afurðir til framleiðenda þeirra.
Á pakkningum matvæla sem unnin eru úr dýrum skal vera auðkennismerki, sem er sporöskjulagað og inniheldur samþykkisnúmerið auk þess sem IS (eða ISLAND eða ICELAND) skal standa ofan við og EFTA neðan við númerið. Auðkennismerki starfstöðvar sem pakkar matvælum undir merki ákveðins dreifingaraðila (smásala) skal koma fram á umbúðum. Auðkennismerkið gefur til kynna að lögbært yfirvald telji viðkomandi leyfishafa uppfylla kröfur Íslands og Evrópusambandsins. Afurðir í umbúðum sem bera slík auðkennismerki eru í frjálsu flæði innan EES svæðisins.

Samþykkisnúmerin eru 4ra stafa númer sem byrja á einum bókstaf og síðan eru 3 tölustafir (t.d. A999). Samþykkisnúmerin koma í stað IS-númeranna. Mesta breytingin frá eldra númerakerfinu (IS-númerin) er sú að samþykkisnúmerið nær yfir allar starfsgreinar sem viðkomandi matvælaframleiðandi hefur leyfi fyrir í sömu starfsstöðinni. Óski hann eftir að bæta við vinnslugrein, sækir hann um það til Matvælastofnunar og að fengnu leyfi hennar gildir sama samþykkisnúmer einnig fyrir þá grein.
Auðkennismerkið á að upplýsa neytendur um að þannig merkt vara sé framleidd þar sem góðir starfshættir eru viðhafðir.
Efst á síðu
Leyfishafar
Matvælastofnun heldur skrá yfir allar samþykktar starfsstöðvar í fiskvinnslu, þ.m.t. vinnslu- og frystiskip. Tengill er hér að neðan inn á opinbera síðu stofnunarinnar þar sem hægt er að sjá flokkun vinnsluleyfa eftir greinum.
Þeir þættir sem varða fiskvinnslu eru:
- Þáttur 0 (Þjónustufyrirtæki s.s. kæli- og frystigeymslur)
- Þáttur VII (Afgreiðslustöðvar fyrir lifandi samlokur, ígulker, sæsnigla, sæbjúgu o.fl.)
- Þáttur VIII (Lagarafurðir þ.e. afurðir sjávar- og ferskvatnsfiska)
Efst á síðu
Framleiðsla fyrir Rússlandsmarkað
Rússneska matvælastofnunin Rosselkhoznadzor ákvað á árinu 2006 að heimila einungis innflutning á matvælum til Rússlands sem framleidd hafa verið af fyrirtækjum þ.m.t. skipum, sem eftirlitsmenn þeirra hefðu tekið út og viðurkennt. Matvælastofnun hefur annast milligöngu um þessar skoðanir hér á landi og verið rússnesku eftirlitsmönnunum til aðstoðar. Þessi samvinna hefur nú þróast þannig að eftirlitsmenn Matvælastofnunar hafa frá árinu 2010 annast úttektir bæði á skipum og landvinnslufyrirtækjum fyrir hönd rússneskra yfirvalda og mælir Matvælastofnun með viðurkenningu þeirra að uppfylltum skilyrðum. Rússnesk yfirvöld munu fylgjast með þessu fyrirkomulagi og geta óskað eftir að koma í eftirlitsferðir hingað til lands.
Þeir aðilar sem hyggjast sækja um leyfi til framleiðslu á Rússlandsmarkað skulu sækja um það á sérstöku eyðublaði til Matvælastofnunar með upplýsingum um hvaða vörutegundir er um að ræða. Ferlið getur tekið allt að 3 mánuðum frá því að Matvælastofnun mælir með leyfi fyrir viðkomandi framleiðanda, þar til útflutningur getur hafist, að því tilskildu að rússnesk yfirvöld samþykki leyfisveitinguna.
Matvælastofnun birtir og uppfærir lista yfir þá leyfishafa sem fengið hafa viðurkenningu rússneskra yfirvalda.
Efst á síðu
Umsóknarferli
Aðili sem er að sækja um nýtt vinnsluleyfi fær fyrst úthlutað skilyrtu leyfi að uppfylltum kröfum um byggingar, búnað og innra eftirlit sem byggir á meginreglum HACCP. Skilyrt vinnsluleyfi eru gefin út til þriggja mánaða. Á þeim tíma skal innra eftirlitið vera orðið virkt, ásamt því að uppfæra gæðahandbók ef einhverjar breytingar eru gerðar á fyrirkomulagi vinnslunnar.Matvælastofnun hefur gefið út eyðublöð og leiðbeiningar fyrir þá sem hyggjast sækja um starfs- eða vinnsluleyfi.
Efst á síðu
Upplýsingar um kröfur
Um fiskvinnslu og meðferð fisks gilda lög nr. 93/1995 um matvæli en að auki gilda sérlög um nr. 55/1998 um sjávarafurðir.
Ný matvælalöggjöf um hollustuhætti og eftirlit gekk í gildi í Evrópu árið 2006 og með samþykkt laga nr. 143/2009 hefur löggjöfin verið innleidd hérlendis þar sem sama löggjöf á að gilda um matvæli í öllum ríkjum á Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Löggjöfin fjallar um hollustuhætti í matvæla- og fóðurframleiðslu og skipulagningu opinbers eftirlits. Reglugerðir ESB eru innleiddar orðréttar hérlendis sem fylgiskjöl með sérstökum gildistökureglugerðum.
Fyrir stjórnendur fyrirtækja sem framleiða afurðir úr sjávarfangi og vatnafiskum hvort heldur um er að ræða veiðar, eldi eða ræktun, eru eftirtaldar reglugerðir mikilvægastar:
- Reglugerð nr. 102/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 178/2002 um almennar meginreglur og kröfur samkvæmt lögum um matvæli, um stofnun Matvælaöryggisstofnunar Evrópu og um málsmeðferð vegna öryggis matvæla.
- Reglugerð nr. 103/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 852/2004 um hollustuhætti er varða matvæli almennt, þ.m.t. um innra eftirlit.
- Reglugerð nr. 104/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 853/2004 um hollustuhætti sem varða matvæli úr dýraríkinu. Í reglugerð EB nr. 853/2004 sem er fylgiskjal nr. I við reglugerð 104/2010, Viðauka III, þætti VIII er fjallað um lagarafurðir en í þætti VII um lifandi samlokur. Skynmatsreglur sem áður voru í viðauka 9 í reglugerð 233/1999 eru nú í Viðauka A við þessa reglugerð nr. 104/2010.
- Reglugerð nr.135/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 2073/2005 um örverufræðilegar viðmiðanir fyrir matvæli.
- Fiskimjöl og lýsi sem ekki er ætlað til manneldis, flokkast nú sem fóðurvinnsla: Reglugerð nr. 107/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 183/2005 um hollustuhætti í fóðuriðnaði.
Yfirlit yfir reglugerðir um tilhögun opinbers eftirlits
og skyldur eftirlitsaðila er að finna í kaflanum um opinbert eftirlit.
Meðal þeirra reglugerða sem fallnar eru úr gildi frá 1. mars 2010 eru:
- Reglugerð nr. 233/1999 um hollustuhætti við meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafla og fiskafurða
- Reglugerð nr. 260/1999 um veiðar, meðferð, vinnslu og dreifingu lifandi samloka
- Reglugerð nr. 77/2001 um framleiðslu á fiskimjöli og lýsi
- Reglugerð nr. 558/1997 um innra eftirlit með framleiðslu sjávarafurða.
Enn eru í gildi:
- Reglugerð nr. 450/1997 um starfshætti faggiltra óháðra skoðunarstofa í sjávarútvegi.
- Reglugerð nr. 536/2001 um neysluvatn.
- auk ýmissa annarra reglugerða sem fjalla um kröfur til matvæla, s.s. um merkingar og aukefni.