Leyfisveitingar fyrir sláturhús
Hver sá sem vill byggja sláturhús til að slátra sláturdýrum í þeim tilgangi að selja afurðirnar á opinberum markaði, skal sækja um leyfi til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og senda teikningar og aðrar nauðsynlegar upplýsingar með. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti leitar umsagnar Matvælastofnunar varðandi umsóknina. Að fengnu samþykki Matvælastofnunar löggildir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið sláturhúsið.
Matvælastofnun veitir rekstraraðilum sláturhúsa sláturleyfi. Skilyrði fyrir sláturleyfisveitingu eru m.a. að sláturleyfishafi eigi löggilt sláturhús eða hafi samning um notkun á löggiltu sláturhúsi og að hann starfræki innra eftirlit samkvæmt reglugerð nr. 40/1999, um innra eftirlit í sláturhúsum og kjötpökkunarstöðvum.
Sjá lög og reglur varðandi sláturhús og kjötskoðun