Fara á forsíðu
LÖG OG REGLUR - MATVÆLALÖGGJÖF EES - 1774/2002/EB

Reglugerð nr. 1774/2002/EB um aukaafurðir dýra sem ekki eru ætlaðar til manneldis

 

Reglugerð (EB) nr. 1774/2002 (Animal by-products) er víðtæk og fjallar um reglur til verndar heilbrigði dýra og manna. Í reglugerðinni er að finna ákvæði um söfnun, flutning, meðhöndlun, markaðssetningu, vinnslu og notkun eða förgun á úrgangi frá dýrum sem ekki er ætlaður til manneldis (aukaafurðir). Jafnframt gilda reglurnar um úrgang sem fellur til við alþjóðlega flutningastarfsemi, sem og almennan eldhúsúrgang. Með setningu reglugerðar hér á landi um meðferð og nýtingu á slátur- og dýraleifum nr. 820/2007 voru margar af efnisreglum reglugerðar (EB) nr. 1774/2002 innleiddar í íslenskt lagaumhverfi. Regluverkið í gerðinni er þó bæði mun víðtækara og ítarlegra en í reglugerð nr. 820/2007. Í reglugerð (EB) nr. 1774/2002 er einnig að finna ákvæði sem skylda alla sem senda, flytja eða taka við aukaafurðum úr dýrum að halda skrá yfir sendingarnar. Mikinn fjölda viðskiptaskjala (heilbrigðisvottorða) er að finna í reglugerðinni og ljóst að skjalavinna fyrir hagsmunaaðila og hið opinbera mun aukast umtalsvert hér á landi við innleiðingu þessarar reglugerðar. Samkvæmt reglugerð (EB) nr. 1774/2002 verða íslensk yfirvöld skuldbundin til þess að farga úrgangi sem tilkominn er vegna riðu með brennslu. Jafnframt verður að álykta svo að yfirvöldum sé skylt að sjá til þess að slík aðstaða sé fyrir hendi, en svo er ekki hér á landi.
 
Einnig hafa s.k. afleiddar gerðir reglugerðar (EB) nr. 1774/2002 verið teknar inn í EES samninginn. Íslensk yfirvöld hafa frest til 1. nóvember 2011 til þess að innleiða þær gerðir sem gilda um búfjárafurðir, kjöt, mjólk og egg. Þennan tíma þarf að nota til að aðlaga stjórnvaldsfyrirmæli að löggjöf ESB og til þess að breyta lagaframkvæmd. Efnisákvæði reglugerðar (EB) nr. 1774/2002 um aukaafurðir vegna fisks og fóðurs öðlast gildi 1. mars 2010.
 
Reglugerð nr. 108/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1774/2002 um heilbrigðisreglur um aukaafurðir úr dýrum sem ekki eru ætlaðar til manneldis.

 

 

Fyrirspurnir sendist til mast@mast.is – merktar “Ný matvælalöggjöf”

 

Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað