Fara á forsíðu
LÖG OG REGLUR - MATVÆLALÖGGJÖF EES - 2073/2005/EB

Reglugerð 2073/2005/EB um örverufræðileg viðmiðunargildi fyrir matvæli

Besta aðferðin við að tryggja öryggi matvæla er að fyrirbyggja hættur með góðum starfsháttum og beita aðferðum sem byggjast á HACCP. Taka skal sýni til greiningar á þeim örverum sem nefnd eru í reglugerð 135/2010 (2073/2005/EB) til að sannprófa að þær aðferðir sem beitt er til að fyrirbyggja hættur nái tilætluðum árangri.

Örverufræðileg viðmið voru sett til að koma á samræmdum viðmiðum varðandi matvæli einkum að því er varðar sjúkdómsvaldandi örverur. Sett eru fram tvenns konar viðmið þ.e. matvælaöryggisviðmið og hollustuháttaviðmið.

Eftirlitsaðilar eiga að sannprófa að matvælafyrirtæki uppfylli þær kröfur sem eru settar fram í reglugerð  1356/2010 (2073/2005/EB). Fyrir þær afurðir þar sem tíðni sýnatöku er skilgreind er skoðað hvort tíðni sýnatöku sé að lágmarki skv. því sem kemur fram í leiðbeiningum MAST um örverufræðileg viðmið. Fyrir önnur matvæli er skoðað hvort sýnatökuáætlun sé byggð á áhættumati og hvort framleiðandi geti fært rök fyrir ákvörðun um tíðni sýnatöku.

Eftirlitsaðilar geta einnig sannreynt að kröfur reglugerðar 2073/2005 um örverufræðileg viðmið séu uppfylltar með skipulögðum sýnatökuverkefnum. Sýni skal ýmist taka af matvælum áður en þau fara í dreifingu eða af matvælum á markaði.. Við gerð opinberra sýnatökuáætlana skal tekið mið af niðurstöðum framleiðanda og áhættumati. Matvælastofnun mun gera áætlun um sýnatökur sem nær til 3-5 ára. Lögð verður áhersla á verkefnatengda sýnatöku þar sem staðan er könnuð í ákveðnum tegundum matvæla.

Reglugerð
135/2010 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2073/2005 um örverufræðilegarviðmiðanir fyrir matvæli.

Breytt með:

Athugið að viðauka I reglugerðar EB 2073/2005 var skipt út í heild sinni með reglugerði 136/2012 sem innleiddi reglugerð EB nr. 1441/2007. Notið því viðauka reglugerðar 136/2012. Reglugerð 167/2012 breytir matvælaflokkum 1.5, 1.9. 1.24 og 2.2.1 í 1. viðauka.

Hér er tengill í
uppfærða útgáfu af 2073/2005 á ensku. Hægt er fá gott yfirlit yfir þær breytingar sem hafa verið gerðar á 2073/2005 með því að kynna sér uppfærðu útgáfuna.

Leiðbeiningar og tengt efni:

    Leiðbeiningar MAST um reglugerð 2073/2005

   
Leiðbeiningar um opinbert eftirlit (ensku)
 
   
Um gerð þessara örveruviðmiðunarregla
 
 
Fyrirspurnir sendist til
mast hjá mast.is – merktar “Ný matvælalöggjöf”

Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað