Matvælastofnun
NIÐURSTÖÐUR TILBOÐSMARKAÐAR MEÐ GREIÐSLUMARK MJÓLKUR 01.12.10
Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur skv. reglugerð nr. 430/2010 þann 1. desember 2010 hefur komið fram  jafnvægisverð á markaði  krónur 280 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.


  Alls bárust Matvælastofnun 56 tilboð um kaup eða sölu greiðslumarks.
 
Fjöldi gildra tilboða um sölu 14.

 
Fjöldi gildra tilboða um kaup 39 .
 
Greiðslumark sem boðið var fram = 927.871 lítrar.
 
Greiðslumark sem óskað var eftir = 876.277 lítrar.
 
Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða = 138.555 lítrar.

Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. desember 2010. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Skurðpunktur línanna sýnir jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum krónur 280 kr/l.


 
Til upplýsinga fyrir tilboðsgjafa

Þeir sem sett hafa inn tilboð um kaup á greiðslumarki og boðið verð sem er hærra eða jafnhátt því jafvægisverði sem fram kom á tilboðsmarkaðinum munu fá keypt greiðslumark í hlutfalli við magn viðkomandi  tilboðsgjafa af heildargreiðslumarki sem kemur til viðskipta.

Þeir sem sett hafa inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem er hærra en það jafnvægisverð sem fram kom geta ekki selt greiðslumark sitt. 

Ítarefni

    Upplýsingasíða um tilboðsmarkað með greiðslumark mjólkur

Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað