26.7.2010
Hjalti Andrason
DÝRALÆKNAR – SAUÐFJÁRSLÁTRUN
|

| Matvælastofnun óskar
eftir að ráða dýralækna tímabundið í heilbrigðiseftirlit við
sauðfjárslátrun (kjötskoðun) nú í haust í sláturhús á Kópaskeri, Húsavík og Höfn.
|
Matvælastofnun óskar eftir að ráða dýralækna tímabundið í heilbrigðiseftirlit við sauðfjárslátrun (kjötskoðun) nú í haust á eftirtöldum stöðum:
- Sláturhús Norðlenska á Húsavík, u.þ.b. sex vikur, september - október
- Sláturhús Fjallalambs á Kópaskeri, u.þ.b. sex vikur, september - október
- Sláturhúsið Norðlenska á Höfn, u.þ.b. sex vikur, september - október
Nánari upplýsingar veitir Kjartan Hreinsson hjá Matvælastofnun í síma 530-4800. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna.