Fara á forsíðu
BÆNDUR


29.7.2010  Lausar stöður
Matvælastofnun óskar eftir að ráða starfsmann í fullt starf vegna matvælaeftirlits með fyrirtækjum í kjöt- og mjólkuriðnaði. Um er að ræða fullt starf á aðalskrifstofu MAST á Selfossi. Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst 2010.
26.7.2010  Lausar stöður

Matvælastofnun óskar eftir að ráða dýralækna tímabundið í heilbrigðiseftirlit við sauðfjárslátrun (kjötskoðun) nú í haust í sláturhús á Kópaskeri, Húsavík og Höfn.
23.7.2010  Fréttir
Grunur er um salmonellusmit í kjúklingi frá Matfugli. Um er að ræða um það bil 13700 kjúklinga sláturhúsahóp með rekjanleikanúmer 011-10-24-4-31, sem slátrað var 20. júlí. Matfugl hefur nú þegar kallað inn viðkomandi hóp og sent tilkynningu á fjölmiðla. Sýni úr smitaða hópnum hefur verið sent til týpugreiningar á Sýkladeild Landspítalans.
22.7.2010  Fréttir

Greinst hefur riða í einni kind á bænum Hurðarbaki í Flóahreppi. Grunur vaknaði vegna sjúkdómseinkenna í kindinni og voru sýni send á Tilraunastöðina að Keldum þar sem greining riðu var staðfest.
21.7.2010  Fréttir
Niðurstöður úr krufningum hrossa með smitandi hósta, sem lógað var í rannsóknaskyni á Tilraunastöðinni á Keldum, benda eindregið til að einkenni veikinnar megi rekja til streptókokkasýkingar (Streptococcus Zooepidemicus) í hálsi hrossanna. Enn er unnið að rannsóknum á uppruna sýkingarinnar.
Eldri fréttir

Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað