Reiðfatnaður og reiðtygi
Hestar á Íslandi eru ekki bólusettir og því viðkvæmir fyrir utanaðkomandi smitefnum.
- Óheimilt er að flytja til landsins:
- Notuð reiðtygi, s.s. hnakka, beisli, múla, hlífar, dýnur, yfirbreiðslur, píska o.s.frv.
- Notaða reiðhanska
- Þvottur og sótthreinsun:
- Notaðan reiðfatnað skal þvo í þvottavél eða þurrhreinsa í efnalaug áður en komið er til landsins
- Notaðan
reiðfatnað sem ekki er hægt að þvo í þvottavél eða þurrhreinsa í
efnalaug, skal hreinsa og sótthreinsa með eftirfarandi hætti:
- Þvo mjög vel með sápuvatni
- Þurrka
- Úða með 1% VirkonS® (10g í hvern lítra af vatni)
- Geyma í a.m.k. 5 daga áður en búnaðurinn er notaður í umhverfi hesta hér á landi