 | Vöktun
Hafrannsóknastofnunar og MAST á eitruðum svifþörungum í
Breiðafirði við Flatey og Stykkishólm og í
Hvalfirði við Hvammsvík hefur leitt í ljós að magn eitraðra svifþörunga
er yfir viðmiðunarmörkum og er veruleg hætta á að kræklingur og annar
skelfiskur sé
eitraður á þessum svæðum, einkum í Breiðafirði. |
Vöktun
Hafrannsóknastofnunar og MAST á eitruðum svifþörungum í
Breiðafirði við Flatey og Stykkishólm og í
Hvalfirði við Hvammsvík hefur leitt í ljós að magn eitraðra svifþörunga
er yfir viðmiðunarmörkum.
|
 Mynd: MrKimm
| | Ef magn eitraðra svifþörunga
er yfir viðmiðunar-mörkum er veruleg hætta á að kræklingur og annar
skelfiskur sé eitraður og óhæfur til neyslu. MAST varar við neyslu á
skelfiski frá umræddum svæðum og er ástandið í Breiðafirði sérstaklega
hættulegt vegna mikils magns Alexandrium þörunga sem valda lömunareitrun
(PSP). Í Eyjafirði við Hrísey eru Pseudonitzschia þörungar yfir
viðmiðunarmörkum en þeir geta valdið ASP þörungaeitrun í skelfiski.
Sýni af krækling hafa verið send til greiningar á ASP og er beðið eftir
niðurstöðum.
|
Niðurstöður vöktunar má sjá hér. Neytendur eru hvattir til að kynna sér niðurstöður vöktunar á eitruðum þörungum ef þeir hyggjast tína skelfisk á umræddum svæðum.
Ítarefni
Þörungaeitur í skelfiski