Matvælastofnun
MATVÆLI - INNFLUTNINGUR Á DÝRAAFURÐUM
Hrátt kjöt - ferðamönnum er óheimilt er með öllu að flytja hrátt kjöt til Íslands. Einungis er heimilt að flytja hrátt kjöt til landsins þegar öllum tilskildum vottorðum skv. 5. og 6. gr. reglugerðar nr. 509/2004 hefur verið framvísað við embætti yfirdýralæknis til umsagnar og landbúnaðarráðuneytið hefur gefið formlegt innflutningsleyfi.

Soðið kjöt - allt að 3 kíló af soðnu kjöti má hafa meðferðis. Sanna þarf að kjötið sé soðið. Það verður á koma greinilega fram á umbúðum að varan sé soðin, að öðrum kosti er hún álitin ólögleg, verður gerð upptæk af tollgæslu og henni eytt. Óyggjandi merking um suðu getur verið "semicooked", "cooked", "fully cooked" þegar um kjötvörur er að ræða. Niðursoðið kjöt telst vera soðið og er því löglegt. Ekki er nægjanlegt að vara sé t.d. söltuð eða reykt.

Ostar - Hafa má meðferðis allt að 3 kíló af ostum, ef þeir eru sannanlega gerilsneyddir. Það verður á koma greinilega fram á umbúðum að osturinn sé unninn úr gerilsneyddri mjólk, að öðrum kosti er hann talinn ólöglegur, verður gerður upptækur af tollgæslu og honum eytt.


Tollafgreiðsla

Við tollafgreiðslu innfluttrar hrárrar eða ósótthreinsaðrar vöru skal skv. 6. grein reglugerðar nr. 509/2004 leyfi landbúnaðarráðuneytisins ásamt eftirtöldum vottorðum (skv. 5. grein sömu reglugerðar) liggja fyrir:

  1. Opinbert uppruna- og heilbrigðisvottorð.
  2. Opinbert vottorð sem staðfestir að dýrum, sem afurðirnar eru af, hafi ekki verið gefin vaxtarhvetjandi efni á eldistímanum.
  3. Vottorð sem staðfestir að vörurnar hafi verið geymdar við a.m.k. -18°C í einn mánuð fyrir tollafgreiðslu.
  4. Opinbert vottorð sem staðfestir að dýrunum, sem afurðirnar eru af, hafi verið slátrað í sláturhúsum og afurðirnar unnar í vinnslustöðvum, viðurkenndum af Evrópusambandinu, aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins eða bandarískum stjórnvöldum, til útflutnings og/eða sölu innan þessara ríkjasambanda.
  5. Opinbert vottorð sem staðfestir að afurðirnar séu lausar við salmonellusýkla.
  6. Slátur- og mjólkurafurðir og egg skulu uppfylla ákvæði gildandi reglugerðar um aðskotaefni í matvælum
  7. Varan skal merkt í samræmi við gildandi reglur um merkingu, auglýsingu og kynningu matvæla.

Fyrir tollafgreiðslu við innflutning á hitameðhöndlaðri vöru sbr. 4. grein reglugerðar nr. 509/2004 skal alltaf leggja fram til umsagnar embættis yfirdýralæknis aðflutningsskýrslu ásamt eftirtöldum vottorðum:

  1. Opinbert uppruna- og heilbrigðisvottorð.
  2. Soðnum sláturafurðum og matvælum, sem ekki eru niðursoðin, fylgi sérstakt opinbert vottorð, sem staðfestir að varan hafi hlotið hitameðferð, þannig að kjarnhiti hafi náð 72°C í 15 sekúndur, sé það ekki staðfest í uppruna- eða heilbrigðisvottorði, sbr. a-lið, eða hafi hlotið sambærilega meðferð að mati yfirdýralæknis.
  3. Mjólk og mjólkurafurðum fylgi sérstakt opinbert vottorð sem staðfestir að varan sé gerilsneydd eða unnin úr gerilsneyddri mjólk, sé það ekki staðfest í uppruna- og heilbrigðisvottorði, sbr. a-lið, eða hafi hlotið sambærilega meðferð að mati yfirdýralæknis.
  4. Eggjum og eggjaafurðum fylgi sérstakt opinbert vottorð sem staðfestir að varan hafi verið hituð í 65°C í fimm mínútur, sé það ekki staðfest í uppruna- og heilbrigðisvottorði, sbr. a-lið, eða hafi hlotið sambærilega meðferð að mati yfirdýralæknis.
  5. Opinbert vottorð sem staðfestir að afurðir séu unnar í afurða-/vinnslustöðvum, viðurkenndum af Evrópusambandinu, aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins eða bandarískum yfirvöldum, til útflutnings og/eða sölu innan þessara ríkjasambanda.

Athugið! Auk aðflutningsskýrslu er um að ræða 3 vottorð; a., e. og annað hvort b., c. eða d., eftir því sem við á.


Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað