Matvælastofnun
EFTIRLIT - MJÓLK OG MJÓLKURAFURÐIR

Matvælastofnun hefur, samkvæmt lögum nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr með síðari breytingum, yfirumsjón með heilbrigðiseftirliti við framleiðslu mjólkur. Héraðsdýralæknar hafa árlegt eftirlit með heilbrigði, hirðingu, aðbúnaði og aðstöðu nautgripa á búum þar sem framleidd er mjólk til sölu.

Matvælastofnun hefur eftirlit með mjólkurframleiðslu hjá framleiðanda og veitir framleiðsluleyfi, sbr. reglugerð nr. 438/2002 um aðbúnað nautgripa og eftirlit með framleiðslu mjólkur og annarra afurða þeirra með síðari breytingum. Matvælastofnun hefur einnig eftirlit með töku sýna vegna eftirlits með mjólkurgæðum hjá framleiðanda.

Heilbrigðisnefndir, undir yfirumsjón Matvælastofnunar, hafa eftirlit með flutningi mjólkur eftir að henni hefur verið dælt á flutningageyma hjá framleiðanda og framleiðslu í mjólkurstöð sbr. reglugerð nr. 919/2002 um mjólk og mjólkurvörur með síðari breytingum. Framleiðsla og dreifing á mjólk og mjólkurvörum skal einnig uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 522/1994 um matvælaeftirlit og hollustuhætti við framleiðslu og dreifingu matvæla, með síðari breytingum, og ákvæði annarra reglna sem ná til þessara matvæla.

Matvælastofnun skal hafa aðgang að mjólkurstöð, niðurstöðum eftirlits á hverjum tíma og öðrum þeim gögnum er varða heilnæmi mjólkur og mjólkurvara. Matvælastofnun framkvæmir árlega úttekt á mjólkurstöðvum vegna útflutningsleyfa þeirra

Afla skal starfsleyfis heilbrigðisnefndar áður en mjólkurstöð og tilheyrandi búnaður er tekinn í notkun. Hlutaðeigandi heilbrigðisnefnd skal hafa samráð við Matvælastofnun um veitingu starfsleyfa fyrir mjólkurstöðvar.

Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað