Koffín er frá náttúrunnar hendi í kaffi, kakói, tei (svörtu og grænu) og gúarana og matvælum unnum úr þeim. Koffín gefur einkennandi beiskt bragð og er notað sem bragðefni m.a. í kóladrykki. Því er einnig bætt í sum matvæli t.d. orkudrykki.
|
Matvæli |
Magn vöru |
Magn koffíns* |
|
Kaffi ** |
Bolli (200 ml) |
100 mg |
|
Svart te |
Bolli (200 ml) |
35 mg |
|
Kóladrykkur |
½ lítri (500 ml) |
65 mg |
|
Orkudrykkur *** |
Dós (250 ml) |
38-80 mg |
|
Mjólkursúkkulaði |
100 g |
15 mg |
|
Dökkt súkkulaði |
100 g |
65 mg |
|
Kakódrykkur |
Ferna (250 ml) |
4,5 mg |
* Mismunandi eftir vörutegundum
** Koffínmagn er mismunandi eftir lögun kaffis
*** Athugið innihaldslýsingu
Koffín hefur margvísleg áhrif en sé þess neytt innan hóflegra marka verkar það fyrst og fremst örvandi á líkamann í gegnum miðtaugakerfið.
Örvandi áhrif koffíns á líkamann veldur útvíkkun æða, hjartsláttur verður örari og blóðflæðið eykst til allra líffæra. Þar að auki hefur koffín áhrif á öndun, örvar meltingu og eykur þvagmyndun.
Koffínríkir drykkir eins og kaffi og orkudrykkir eru vinsælir þar sem koffín getur dregið úr einkennum þreytu og virðist geta aukið einbeitingu. Hafa ber í huga að neysla á koffíni í stórum skömmtum egur haft ýmis óæskileg áhrif á líkamann og andlegt ástand, ekki síst hjá börnum og unglingum.
Besta ráðið við þreytu er hvíld og góður svefn!
Ef koffíns er neytt í of miklu magni getur það haft ýmis óæskileg áhrif á heilsu og líðan fólks og valdið höfuðverk, svima, skjálfta, svefnleysi, hjartsláttartruflunum og kvíðatilfinningu.
Börn, unglingar og barnshafandi konur eru almennt viðkvæmari fyrir koffíni en aðrir. Áhrif koffíns á börn eru meiri en hjá öðrum þar sem taugakerfi þeirra er enn að þroskast. Óæskileg áhrif geta komið fram hjá börnum jafnvel eftir tiltölulega litla neyslu koffíns.
Þegar barnshafandi kona neytir koffíns berst það í gegnum ffylgjuna til fóstursins. Fóstrið verður fyfif sömu áhrifum og móðir þess en hjá fóstrinu vara áhrifin lengur. Rannsóknir hafa sýnt neikvæða fylgni millli fæðingarþyngdar og mikillar koffínneystlu móður á meðgöngu. Mikil koffínneysla virðist einnig auka líkur á fósturláti.
Orkudrykkir
Orkudrykkir er samheiti yfir drykki sem innihalda einhvers konar örvandi efni og eiga þeir það allir sameiginlegt að innihalda koffín, þó í mismiklu magni. Í flestum orkudrykkjum eru auk þess viðbætt vítamín eða önnur virk efni.
Rannsóknir hafa sýnt að ef áfengi er blandað orkudrykkjum með hátt innihald koffíns eða þeirra er neytt samhliða mikill hreyfingu geti það valdið hjartsláttartruflunum, einkum hjá viðkvæmum einstaklingum.
Hámarksneysla
Fólk er misviðkvæmt fyrir áhrifum koffíns. Tiltölulega lítill skammtur af koffíni getur valdið magaverkjum og svefntruflunum hjá einum einstaklingi þó að annar þoli það betur.
Rannsóknir hafa sýnt að neysla koffíns, undir 400mg á dag (u.þ.b. 4 kaffibollar) hjá heilbrigðum fullorðnum einstaklingi, sé skaðlaus fyrir heilsuna. Neysla umfram það magn eykur hættuna á skaðsemi.
Barnshafandi konum og konum með barn á brjósti er ráðlagt að neyta ekki meira en 200 mg af koffíni á dag (u.þ.b. 1-2 kaffibollar).
Dagleg neysla barna og unglinga á koffíni ætti ekki að vera meiri en 2,5 mg/kg líkamsþyngdar. Þetta samsvarar 60mg af koffíni hjá 7 ára barni sem vegur 24 kg. Í hálfum lítra af kóladrykk eru 65 mg af koffíni.
Hámarksneysla barna og unglinga á koffíni:
|
Líkamsþyngd |
Hámarksneysla koffíns á dag |
|
20 kg |
50 mg |
|
30 kg |
75 mg |
|
40 kg |
100 mg |
|
50 kg |
125 mg |
Lög og reglur
Reglugerð 884/2003 um matvæli sem innihalda kínín og matvæli se innihalda koffín fjallar um hvernig merkja skal koffíninnihald. Ef koffín er meira en 150mg/l skal setja textann “inniheldur mikið af koffíni” á umbúðir þannig að hann beri fyrir augu um leið og heiti vörunnar. Á eftir honum skal svo tilgreina magn koffíns í mg/100ml.
Í reglugerð 587/1993 um bragðefni með síðari breytingum kemur fram að íblöndun koffíns í önnur matvæli en drykkjarvörur er bönnuð.
Ítarefni:
Koffín ... neysla og áhrif - fræðsla um koffín fyrir foreldra og börn
Grein um koffín
Bæklingur Matvælastofnunar um koffín
Orkudrykkir
Mælingar á koffíni í drykkjum á íslenskum markaði
Koffín neysla á Íslandi 2002 (á ensku)
Áhættumat á koffínneyslu meðal barna og unglinga á Norðurlöndum (á ensku)
Lög og reglur - Bragðefni