Heilbrigðisskoðun sláturafurða
Bæði skrokkar og líffæri eru skoðuð skipulega og litið er eftir breytingum af völdum sjúkdóma eða áverka. Afurðirnar eru dæmdar í 3 flokka með tilliti til heilbrigðis. Í fyrsta flokk fara afurðir sem eru skilyrðislaust hæfar til manneldis. Í annan flokk fara afurðir sem hæfar eru til manneldis vel steiktar eða vel soðnar. Í þriðja flokk fara afurðir sem eru óhæfar til manneldis og dæmdar sjúkar.
Afurðir í fyrsta flokki eru stimplaðar með stimplinum "ICELAND" og löggildingarnúmeri sláturhússins. Kjöt í öðrum flokki fær stimpil sem er jafnarma þríhyrningur með löggildingarnúmeri sláturhúss innan í og afurðir í þriðja flokki eru stimplaðar með ferhyrndum stimpli með orðinu "SJÚKT" innan í. Slíkar afurðir mega ekki fara á markað en skulu fluttar rakleiðis úr sláturhúsi til eyðingar.
Kjötskoðunarlæknar annast hreinlætiseftirlit í sláturhúsum annars vegar með sjónmati og hins vegar með gerlafræðilegum aðferðum. Í sauðfjárslátrun skal sjónmeta hreinlæti og skrá.