Veiðibúnaður
Íslenskar laxveiðiár búa enn við þá sérstöðu að geta
státað af heilbrigðum fiski. Sem liður í forvörnum gegn alvarlegum
smitsjúkdómum í laxfiskum er skylda að sótthreinsa notaðan innfluttan
stangveiðibúnað og hefur svo verið allar götur síðan vorið 1971.
Illkynja sjúkdómsvaldar á borð við veirur ýmis konar og sníkjudýrið Gyrodactylus salaris hafa aldrei greinst í ferskvatnsfiskum á Íslandi.
- Óheimilt er að flytja til landsins:
- Notaðan
veiðibúnað, s.s. stangir, veiðihjól, öngla/spóna/flugur, vöðlur og
háfa, nema að hann sé sótthreinsaður með viðurkenndum hætti
- Sótthreinsun:
- Sótthreinsun
skal framkvæmd af dýralækni í útflutningslandi og vottorð þar um skal
fylgja búnaðinum til landsins. Að öðrum kosti ber að tilkynna
tollayfirvöldum um veiðibúnaðinn við komuna til landsins sem sér um að
koma honum til sótthreinsunar á kostnað eiganda.
Vottorð um sótthreinsun
Leiðbeiningar um sótthreinsun á stangveiðibúnaði
Lágmarks útbúnaður til sótthreinsunar samanstendur af stampi eða rennu til ídýfunar, úðabrúsa og skolvaski. Þá er einnig gott að hafa plastpoka og límband við höndina.
Það sótthreinsefni sem er viðurkennt í þessu sambandi er VIRKON-S. Efnið er mjög virkt gegn þeim smitefnum sem við eigum í baráttu við, skemmir ekki áhöld né fatnað ef rétt er að staðið og er óskaðlegt húð í þeim styrkleika sem ráðlagður er.
Notkun á VIRKON-S er með eftirfarandi hætti:
- 1% lausn (10 grömm (2 töflur) í hvern líter af vatni)
- Lausnin er rauðleit en verður með tímanum glær þegar virkni dvínar
- Meta þarf í hvert sinn þörfina fyrir sótthreinsun. Nýjan og ónotaðan
búnað þarf að sjálfsögðu ekki að sótthreinsa en ef óhreinindi eða raki
er áberandi ber að taka slíkan varning gaumgæfilega.
- Best er að úða vökvanum gaumgæfilega yfir þá fleti sem skal
sótthreinsa. Ef um veiðistöng er að ræða er nóg að úða bara skaftið.
Veiðihjól og önglabox má úða í heild sinni og ráðleggja skal eiganda að
skola síðan vel í rennandi vatni eftir a.m.k. 10 mín. snertitíma. (Ath!
Flugubox innihalda oft nýjar ónotaðar flugur sem eru þar með
undanþegnar sótthreinsun). Háfar, hnífar, rotarar, veiðivesti,
veiðiskór og vöðlur skal einnig úða vel (jafnvel dýfa í sótthreinsirennu/stamp). Best að setja þennan búnað svo beint í
plastpoka og hnýta fyrir.
Undanþágur frá sótthreinsun varnings við komuna til landsins
Að ígrunduðu máli er eftirfarandi varningur undan-þeginn sótthreinsun við komu farþega erlendis frá:
- Kajakar og aðrir léttabátar
- Kafarabúningar, bæði blaut- og þurrbúningar
- Veiðibúnaður sem notaður hefur verið á Grænlandi
- Allur varningur sem án vafa er nýr og ónotaður