Fara á forsíðu
3.2.2012  Fréttir
Dýralíf hefur skv. fyrirmælum Matvælastofnunar fargað öllu Robur gæludýrafóðri og hefur stofnuninni borist staðfesting frá meindýraeyði um að eitrað hafi verið í verslun Dýralífs vegna kóprabjöllusmits. Matvælastofnun afléttir því hér með banni við sölu gæludýrafóðurs.
3.2.2012  Fréttir
Þann 27. janúar 2012 var gefið út bann við sölu Robur hundafóðurs eftir að í því fundust kóprabjöllur hjá einum innflytjanda. Við eftirlit Matvælastofnunar fundust engar vísbendingar um umræddar bjöllur í Roburfóðri hjá fyrirtækinu Aflmarki ehf. Matvælastofnun afléttir því hér með banni við sölu Robur fóðurs frá fyrirtækinu.
2.2.2012  Fréttir
Matvælastofnun, í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands og Matís, heldur fræðslufund um eftirlit með áburði miðvikudaginn 8. febrúar 2012 kl. 15:00 á Stórhöfða 23. Á fundinum verður fjallað um framkvæmd áburðareftirlits hérlendis, kadmíum og uppsöfnun þungmálmsins í jarðvegi og landbúnaði, ásamt mögulegum áhrifum þess á lýðheilsu.

Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað